Close

Svona gerum við

Námsefni

Einföld gröf í Excel reitum

“Data bars” nefnist nýr og alveg stórsniðugur möguleiki í Excel 2007 sem Microsoft leggur nú allt kapp á að klára. “Data bars” er sérlega einfalt í notkun og gerir notendum Excel kleift að setja fram tölfræðilegar stærðir á myndrænan hátt innan einstakra reita. Það má orða þetta svo að verið sé að setja lítil gröf inn í einstaka reiti.

Meðfylgjandi mynd sýnir betur hvað átt er við. Smelltu á myndina til að kalla fram myndskeið sem sýnir hvernig farið er að.

Databars 2007

Excel 2003, þ.e. sú útgáfa sem algeng er í dag, inniheldur ekki þennan möguleika en engu að síður er hægt að komast ansi nærri honum með því að nota hina sjaldséðu en þó handhægu REPT formúlu.

Í Excel er REPT formúlan skilgreind á eftirfarandi máta

REPT (text;number_times)
Repeats text a given number of times. User rept to fill a cell with a number of instances of a text string

REPT endurtekur textastreng, sem getur verið einn bókastafur eða heil setning og allt þar á milli, ákveðið mörgum sinnum. Þessa virkni má einmitt nota til þess að teikna upp einföld gröf í reiti eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Databars

Formúlan í D3 reitnum er eftirfarandi (hún er síðan afrituð niður)

=REPT(“▄”;C3)

Táknið (innan gæsalappanna í formúlunni) sem myndar grafið getur verið hvaða tákn sem er. Í þessu tilfelli var lítill kassi búinn til með því að velja ALT+220.


Tengt efni

  1. Andri08-14-06

    Þetta er mjög sniðugt, hlakkar smá til að prófa pakkann. Fyrst þegar ég sá þessi Databars fyrr í sumar ákvað ég að henda upp einföldum JS/CSS kóða til að prófa þetta. Ég ætlaði alltaf að skella því svo upp á bloggið mitt en hef ekki fundið tíma til þess, sendi þér linkinn þegar ég hendi þessu inn.

Skráðu athugasemd