Saga námsstjórnunarkerfa
Í kjölfar einkaleyfis Blackboard í Bandaríkjunum á helstu grunnþáttum námsstjórnunarkerfa hefur áhugafólk og fagaðilar víðsvegar um heiminn tekið saman heimildir um sögu námsstjórnunarkerfa á Wikipedia. Framtakið er liður í baráttu grasrótarinnar gegn einokunartilburðum Blackboard og miðar að því að sanna að virkni sú og eiginleikar sem fyrirtækið hefur eignað sér hafi verið til staðar áður en sótt var um einkaleyfi.


