Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær helstar að upplýsinga- og samskiptatæknin er fyrst og fremst notuð sem stuðningur við annað nám með hjálp þjálfunarforrita og gagnvirkra vefja, án þess að inntaki námsins væri breytt. Tilgangurinn væri fyrst og fremst sá, að þjálfa ákveðna færni og auka fjölbreytni í sérkennslunni og vekja áhuga nemenda.
Upplýsinga- og samskiptatæknin virðist ekki vera mikið nýtt til þess að draga úr áhrifum hömlunar nemenda með því að fara aðrar leiðir að námsmarkmiðum eða auðvelda nemendum þátttöku í almennu skólastarfi. Samkvæmt skýrlslunni vissu kennarar af öðrum möguleikum sem fólgnir væru í tölvunotkun, en töldu vandkvæði á að nýta þá vegna aðstæðna í tæknimálum eða skipulags kennsluhátta. Þátttakendur töldu ráðgjöf til kennara um nýtingu tölvutækni í sérkennslu litla sem enga og lítil umræða um málefnið. Nýting tækninngar fór því fyrst og fremst eftir áhuga og þekkingu einstakra kennara.
Skýrslan er aðgengileg á pdf sniði á vef NÁMUST rannsóknarinnar.


