Microsoft kynnir Windows Live Writer

Skrifað 20. August 2006
Flokkur: Microsoft, blogg
Engar athugasemdir frá lesendum

Windows Live Writer er nýr hugbúnaður sem einfaldar bloggurum lífið með því að gera þeim kleift að skrá færslur í einföldu ritvinnsluumhverfi og senda síðan á Netið þegar þær eru fullbúnar. Live Writer styður við Windows Live Spaces bloggþjónustuna en einnig aðrar algengar þjónustur eins og Wordpress, TypePad, Blogger, LiveJournal og fleiri.

Á myndinni hér að neðan má sjá notendaviðmót Live Writer, en hugbúnaðurinn hefur hlotið ágætisviðtökur meðal Netverja.

Microsoft Live Writer

Greinilegt er að Microsoft hefur lært sitt hvað á velgengni opins hugbúnaðar á síðustu árum. Þrátt fyrir að Live Writer sé ekki opinn hugbúnaður þá er eftir megni reynt að skapa samfélag í kringum notkun forritsins og þróun þar sem sótt er eftir bæði ábendingum og viðbótum frá notendum. Þá hefur verið stofnað blogg þar sem teymi forritara og þróunaraðila Live Writer hefur kost á því að tjá sig og koma upplýsingum um Live Writer á framfæri við áhugasama lesendur. Því miður hafa þessir aðilar ekki verið mjög duglegir við greinarskrif, en hugmyndin er góð.

Einn helsti styrkleiki Live Writer felst að mínu mati í því hálfopna þróunarumhverfi sem Microsoft hefur kosið að nýta. Hér á ég við þann möguleika notenda að skrifa hvers kyns viðbætur (plugins) sem auka notagildi hugbúnaðarins. Nú þegar hafa verið skrifaðar fjölda viðbóta sem t.d. auðvelda birtingu mynda úr Flickr safninu eða myndskeiða sem hýst eru á YouTube.

Ég er nokkuð sáttur við þessa nýjustu afurð Microsoft og nota hana reyndar til þess að skrifa þessa færslu. Uppsetningin var áreynslulaus og ég prufaði einnig Flickr viðbót sem virkar með miklum ágætum. Reyndar get ég ekki nýtt alla möguleika Wordpress innan Live Writer sem þekkir t.d. ekki Wordpress flokkana sem ég nota til að skilgreina lykilorð við bloggfærslurnar. Annað sem vakti undrun mína er að textajöfnun var að finna á Format valseðli Live Writer en ekki á hnappastikunni eins og venjan er með svo algenga skipun.

Sjálfsagt er að geta þess að Windows Live Writer er ekki eini hugbúnaður sinnar tegundar, en forrit eins og Ecto og Qumana (bæði fáanleg fyrir Windows og Makka) og fleiri hafa verið til staðar í lengri tíma. Windows Live Writer er engu að síður hentug lausn sem örugglega á eftir að nýtast mörgum. Hægt er að sækja Windows Live Writer án endurgjalds hér.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni