Vantrú, hneykslan og fordæming

Skrifað 31. August 2006
Flokkur: Almennt
Ein athugasemd frá lesendum

BlackboardViðbrögð netverja við einkaleyfi Blackboard á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa og lögsókn þess í kjölfarið á hendur kanadíska fyrirtækinu Desire2Learn, framleiðanda samnefnds námsstjórnunarkerfis, hafa einkennst af vantrú, hneykslan og fordæmingu. Blackboard stendur nú eitt og utangarðs rúið trausti og tiltrú hins akademíska samfélags eins og það endurspeglast á Netinu.

Umfjöllunin á Netinu fer fram á opinberum jafnt sem samfélagsdrifnum fréttavefjum, umræðuvefjum hvers kyns, persónulegum bloggsíðum og innan fjölda netsamfélaga og er óhætt að segja að þar hefur ekkert verið undan skilið í sterkorðuðum lýsingum á atferli Blackboard. Áhrif umræðu netverja á sterka markaðsstöðu Blackboard og fjárhagslega afkomu eru umdeilanleg, en varla mun nokkur maður halda því fram að orðræðan verði fyrirtækinu til framdráttar. Það er enda ekki minnst á þessi skrif, hvorki opinber eða persónubundin á síðu þeirri á vef Blackboard þar sem birt er umfjöllun um fyrirtækið í fjölmiðlum .

Það sem ekki síst hefur vakið gremju netverja í öllum málatilbúnaði Blackboard er sú staðreynd að með veitingu einkaleyfisins hefur fyrirtækið eignað sér heiðurinn af tilurð og algengri virkni hefðbundinna námsstjórnunarkerfa. Þessu neita forsvarsmenn Blackboard reyndar staðfastlega og benda á vanþekkingu netverja á einkaleyfum og lögfræðilegu orðalagi í texta þeirra. Á vef Blackboard segir eftirfarandi:

Just as not every course management system ever created would infringe the patent, not just any course management system would invalidate the patent. It is not enough to point to the fact that many course management systems existed prior to the filing date of Blackboard’s patent in order to invalidate the patent. To be invalidating prior art, it must describe each and every element of each and every claim of the Blackboard patent.

Engu að síður eru stjórnendur Blackboard sannfærðir um að keppinautar þeirra í Desire2Learn brjóti skilyrði einkaleyfisins og vaknar því sú spurning hvaða hefðbundna námsstjórnunarkerfi gerir það ekki? Desire2Learn er nefnilega mjög hefðbundið námsstjórnunarkerfi í alla staði, líkt og svo ótal mörg önnur. Það eru helst framsæknar lausnir eins og ELGG sem eru óhultar fyrir einokunartilburðum Blackboard. En það má einnig velta því fyrir sér hversu lengi það verði því Blackboard eru með fleiri einkaleyfi í farvatninu.

Annað sem farið hefur fyrir brjóstið á mörgum þeim sem fjallað hafa um einkaleyfi Blackboard eru orð framkvæmdastjóra Blackboard, Michael Chasen þess eðlis að Blackboard fyrirtækið þyki leiðandi á vettvangi netbundins náms.

“For nearly a decade, Blackboard has been a thought leader in the e-Learning industry and has developed products that have helped to fundamentally alter how educational institutions and their educators teach and communicate with students,”

Blackboard fyrirtækið er leiðandi á markaði (líklegast með um 70% markaðshlutdeild í bandarísku skólakerfi) en frumherjar geta þeir ekki talist og það er varla nokkur maður sem heldur slíkri firru fram að Michael Chasen undanskyldum. Eftirfarandi efnisgrein er lýsandi fyrir sjónarhorn fjölmargra netverja sem fjallað hafa um málið:

Much of the early thinking about virtual learning environments took place in an environment in which ideas and requirements were freely shared between users, developers, companies, and researchers, for example (but not only) under the auspices of IMS. There is a strong sense (whether or not erroneously held) that the know-how on the basis of which Blackboard’s patent is based derives from that open sharing. Thus Blackboard is viewed as seeming to have “advanced its own interests on the back of the work of others”, to such an extent that “within the academy” people are likely to become much more cautious about the open sharing that has featured in recent years; and universities may start actively to prevent “IP leakage”. That would be a block on innovation.
(Smellið hér til að lesa skjalið í heild sinni)

Það má líka telja þá einstaklinga á fingri annarrar handar (ef þeir þá finnast utan herbúða Blackboard) sem telja einkaleyfi Blackboard skref í rétta átt fyrir framþróun og framkvæmd netbundins náms.


Tengt efni

1 athugasemd við “Vantrú, hneykslan og fordæming”

  1. sfjalar - » Evrópuþingið samþykkir umdeilda tilskipun skrifar:

    [...] Sjálfur óttast ég tilskipanir sem þessar og tel augljóst að þær þjóðir sem hafa gengið hvað harðast fram á vettvangi höfundarréttar og einkaleyfa séu þegar komnar í miklar ógöngur. Hér má t.a.m. benda á Bandaríkjamenn og Frakka. Einkaleyfakerfið í Bandaríkjunum eitt og sér er svo yfirgengilega fáránlegt að það væri efni í marga langa pistla að fjalla um það. Ég læt duga að vísa í umfjöllun mína um einkaleyfi Blackboard á námsstjórnunarkerfum. [...]

Skráðu athugasemd