Sjálfur nota ég Picasa til þess að halda utan um stafræna myndasafnið í tölvunni minni en hýsi myndir á Flickr, þær sem ég vil gera aðgengilegar umheiminum. Nýlega rakst ég á leiðbeiningar um hvernig tagga má myndir innan Picasa og senda síðan með þeim upplýsingum yfir í Flickr. Aðferðin reyndist alveg ágætlega þannig að ég tók saman leiðbeiningar um ferlið á íslensku. Þessar leiðbeiningar geri ég nú aðgengilegar netverjum.


