First Lego League er eitthvað sem ég hef verulegan áhuga á því að kynna mér nánar, en í nóvember nk. verður Lego hönnunarkeppnin haldin í annað sinn hér á landi. Mótið er alþjóðlegt og hefur víst slegið í gegn bæði vestan hafs og austan samkvæmt Ernu Sigurðardóttur verkefnisstjóra First Lego League á Íslandi.
Markmiðið með keppninni er að efla tækni- og raunvísindaáhuga barna á grunnskólastigi. Þátttakendur eru á aldrinum 10 til 16 ára og samanstendur hvert lið af 6-12 börnum og a.m.k. einum fullorðnum liðsstjóra. Sigurvegarar keppninnar á Íslandi eiga kost á að fara á Evrópumót sem haldið verður í maí í Bodö í Noregi.
Hér má sjá áhugaverða stuttmynd um First Lego League keppni sem haldin var í suður Karolínu í Bandaríkjunum. Fleiri stuttmyndir um First Lego keppnir eru aðgengileg í boði Google á Video.google.com vefnum.
Ég vek athygli á því að dagana 15. og 16. september nk. verður haldið námskeið fyrir leiðbeinindur um hönnun og forritun á Lego vélmennum og farartækjum í Salaskóla í Kópavogi. Hægt er að skrá sig á námskeið með tölvupósti á netfangið: rasmus@ismennt.is .


