Adobe kynnir Captivate 2

Skrifað 18. September 2006
Flokkur: flash
Engar athugasemdir frá lesendum

159x120_captivate.gifÞann 5. september s.l. opinberaði Adobe nýjustu útgáfu Captivate hugbúnaðarins vinsæla og þá fyrstu síðan Adobe og Macromedia urðu eitt. Captivate einfaldar mjög gerð gagnvirks kennsluefnis sem ætlað er til birtingar á vef á Flash sniði og hefur mikið verið notað til kynningar og kennslu á hugbúnaði.

Nýja útgáfan verður fáanleg síðar á árinu og kemur til með að kosta 599 dollara eða rétt rúmlega 42.000kr á gengi dagsins í dag (þ.e. 18. sept. 06). Það er nokkur hækkun frá því sem var, en þess má geta að breytingar í nýju útgáfunni eru umtalsverðar. Uppfærsluverð mun vera 299 dollarar, eða rúmlega 21.000 kr. Veittur verður sérstakur afsláttur til menntastofnana.

Adobe stendur fyrir kynningum á Netinu á Captivate 2 þessa dagana en umfram það og fréttatilkynninuna frá fyrirtækinu er frekar litlar upplýsingar að hafa. Ég fann þó yfirlit yfir nýjungar hér. Og hér er svo blogg sem sérstaklega er helgað Captivate 2.

Helstu keppinautar Adobe Captivate eru eftirtaldir:


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni