Close

Svona gerum við

Námsefni

Ókeypis varnir gegn vírusum

virus.gifFrændi minn Hörður heimsótti mig um daginn, sem er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað með honum í för var fartölva nokkur sem var illa farin eftir skæða árás vírusa, njósnahugbúnaðar og annarrar óværu rafræns eðlis. Fartölvueigandinn bar sig að vonum illa en upphaf innrásarinnar má rekja til skilaboða á MSN sem fóru eins og eldur um sinu um Netið fyrir nokkru og innihéldu vefslóð sem því miður allt of margir smelltu á.

Sjálfsagt er að brýna fyrir öllum tölvunotendum að varast allar slíkar sendingar á MSN og öðrum samskiptavettvöngum Netsins eins og þeirri sem lýst var hér að ofan. Sérstaklega þegar sendandinn er óþekktur en einnig þegar vitað er hvaðan skilaboðin koma.

Mikilvægi öflugra varna gegn vírusum verður heldur ekki ofmetið. Í því sambandi langar mig að benda á fróðlega könnun sem varð á vegi mínum nýlega þar sem viðfangsefnið var einmitt vírusvarnir. Nú eru kannanir sem þessar ekki óalgengar og eðlilegt að taka niðurstöðum þeirra með gát.

Könnunin sem hér um ræðir var framkvæmd á vegum Virus.gr sem sérhæfir sig í rannsóknum og upplýsingagjöf á vettvangi vírusvarna. Samkvæmt könnun Virus.gr eru eftirfarandi þrjár hugbúnaðarlausnir öflugastar þegar kemur að vírusvörnum:

Athugið að listinn telur alls 58 lausnir og er vel þess virði að skoða hann í heild sinni. Það skal einnig endurtekið að kannanir sem þessar ber að taka með þeim fyrirvara að ólíkar rannsóknaraðferðir skila ólíkum niðurstöðum. Skoðið aðra samskonar lista á Netinu og þið munið sjá allt aðrar niðurstöður. Þeirri spurningu verður því væntanlega seint svarað hvaða vírusvarnarforrit er best allra.

Engu að síður er könnunin allrar athygli verð og ekki síst fyrir þær sakir að á listanum má finna þrjár ókeypis vírusvarnir sem allar standast ágætlega samanburð við dýrkeyptari hugbúnað. Það ætti því að vera óhætt að mæla með eftirfarandi hugbúnaði og kynna fyrir nemendum sem oft hafa takmörkuð fjárráð þegar kemur að hugbúnaðarkaupum:



Tengt efni

Skráðu athugasemd