Close

Svona gerum við

Námsefni

Netmálstofa um opinn hugbúnað

opensourcelogo.gifFagfélagið 3F, félag um upplýsingatækni og menntun hefur tekið að sér að sjá um netmálstofu á ráðstefnunni Samræða milli skólastiga.

Netmálstofan verður föstudaginn 29. september kl. 16:00 – 17:20.

Á málstofunni verður fjallað um samvinnu og samstarf um hugbúnað og þýðingar tölvuhugbúnaðar á íslensku og samvinnu og samstarf um námsefni og leiðbeiningar fyrir kennara og nemendur. Sérstaklega verður fjallað um ókeypis og opinn hugbúnað sem nýtist fyrir nemendur og skólastofnanir.

Salvör Gissurardóttir lektor í KHÍ stýrir netmálstofunni en auk hennar taka til máls Sigurður Fjalar Jónsson F.B., Elín Jóna Traustadóttir Flúðaskóli og fleiri

Allar frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.


Tengt efni

Skráðu athugasemd