Málefni sem brenna á UT-fólki
Á ráðstefnunni – Það er leikur að læra – Samræða allra skólastiga 29.-30.sept. 2006 stendur 3F – félag um upplýsingatækni og menntun (http://www.ismennt.is/not/3f) fyrir eftirfarandi tveimur málstofum:
- Út fyrir ramma ráðstefnunnar
Umsjón með ráðstefnunni hefur Sólveig Jakobsdóttir og fjallar um helstu málefni og uppbyggingu fagsamfélags á sviði UT. - Opinn hugbúnaður
Umsjón er í höndum Salvarar Gissurardóttur með þátttöku Sigurðar Fjalars Jónssonar og Elínar Jónu Traustadóttur. Viðfangsefnið er opinn hugbúnaður (open source) í skólastarfi.
Í framhaldi af þessum málstofum verður áhugafólki boðið að prófa Moodle námsumhverfið en það kerfi hefur verið sett upp við KHÍ og halda umræðum þar áfram um mikilvæg málefni sem brenna á fólki í UT-geiranum.


