Leiðir Mambo og Joomla skildu þann 17. ágúst 2005 og í kjölfarið var opnaður vefurinn opensourcematters.org. Á aðeins einum degi gerðust yfir 1000 manns áskrifendur að póstlista vefsins og sýndu þannig stuðning sinn við Joomla í verki. Útgáfa 1.0 af Joomla var svo opinberuð tæplega mánuði síðan, þ.e. 16. september og var í raun Mambo 4.5.2.3 að viðbættum öryggisuppfærslum og nokkrum villuleiðréttingum.
Fram til þessa hafa Mambo og Joomla lausnirnar verið mjög sambærilegar en það kemur allt til með að breytast þann 12. október nk. þegar Joomla 1.5 kemur út í betaútgáfu. Segja má að frá og með þeim degi verði aðskilnaður kerfanna fullkomnaður. Joomla notendur hafa lengi beðið þessa dags og nú er hann loks í augsýn.
Joomla hentar einstaklega vel fyrir skóla sem vilja koma upp vef enda í mikilli notkun hérlendis:
- Flúðaskóli
- Félag íslenskra söngkennara
- Kiteland (Allt um flugdreka)
- Efnafræðifélag Íslands
Joomla er opinn hugbúnaður (open source) og heldur til á vefnum www.joomla.org. Þess má geta að nafnið Joomla er fengið úr Swahili og merkir “allir saman” eða “allir sem einn”.


