Deildu glærunum þínum með Slideshare
Það hefur varla farið framhjá nokkrum netverja að “heitustu” vefirnir í dag eru þeir sem gefa notendum kost á að horfa á og deila með sér stuttum myndskeiðum. Hér á ég við vefi eins og YouTube og Google Videos sem njóta hreint ótrúlegra vinsælda meðal allra aldurshópa. Svovinsælir eru þessir vefir að það hefur vakið athygli Microsoft sem nýlega kynnti til sögunnar eigin myndskeiðsþjónustu, nefnilega Soapbox.
Slideshare er ný netbundin þjónusta sem líkist mjög YouTube og Google Video að allri virkni og viðmóti nema í stað myndskeiða þá deila notendur með sér Powerpoint og Open Office skjölum. Hugmyndin er mjög sniðug og ég er viss um að margir kennarar sjá þarna tækifæri til að hýsa og miðla kennsluefni á einfaldan og öflugan hátt.
Slideshare er enn í notendaprófunum og þegar þetta er skrifað er ekki alveg ljóst hvenær herlegheitin verða endanlega opinberuð almenningi. Það getur þó varla verið lengi að bíða því lausnin virðist virka alveg ljómandi vel. Þeir sem ekki geta beðið eiga kost á því að sækja um prufuaðgang sem undirritaður og gerði með góðum árangri.
Þeir sem þekkja helstu virkni ofangreindra myndskeiðsmiðla vita nákvæmlega hvað Slideshare gengur út á. Notendur hafa kost á því að skrá sig fyrir ókeypis aðgangi og sett inn efni eða sleppt innskráningunni og takmarkað sig við að skoða efni frá öðrum notendum. Efni má einnig miðla með því senda slóð að því í tölvupósti eða að sækja html kóðabút og innlima (embedd) í eigin vefi eða bloggfærslur líkt og hægt er með myndskeið. Efnið sem miðlað er á Slideshare er á flash sniði og ég hef gert tilraun með að varpa glærukynningu þaðan inn í Moodle kennsluvef og tókst það fullkomlega.
Slideshare hentar augljóslega kennurum sem vilja deila efni sem unnið er í Powerpoint eða Open Office Impress. En nokkra galla má þó finna á gjöf Njarðar:
- Skrár geta ekki verði stærri en 20MB enn sem komið er en til stendur að bæta úr því
- Það er ekki hægt að takmarka aðgengi að efni - en að vísu er ekki hægt að vista efnið heldur á eigin tölvu
- Hreyfingar/myndlífgun og annað ofnotað grafískt góðgæti sem Powerpoint og OO/Impress bjóða uppá er ekki í boði
- Ekki er hægt að hljóðsetja glærusýninguna (þetta finnst mér reyndar stór galli á annars frábærri hugmynd)
Á hinn bóginn er hægt að tagga/merkja glærusýningarnar og notendur geta sent inn athugasemdir. Hver glærusýning (er ekki til eitthvað skárra orð?) fær sína eigin vefslóð og það er meira að segja hægt að vísa í einstaka glærur innan ákveðinnar kynningar.
Ég mæli með því að þið kynnið ykkur Slideshare því þarna er sannarlega áhugaverð þjónusta í boði. Auðvitað vakna upp ýmsar spurningar varðandi erlenda hýsingu á eigin efni. Hvaða tryggingu höfum við svo sem fyrir því að þessi hugmynd muni lifa af í hinum harða heimi ókeypis netþjónusta? En geymum slíkar vangaveltur til betri tíma. Slóðin að Slideshare er http://slideshare.net/ en eins og áður segir eru notendaprófanir enn í gangi þannig að líklegast leiðir þessi slóð ykkur beint að innskráningarsíðu. Þið getið reynt að sækja um prufuaðgang en ég á einnig 10 boðskort inn á Slideshare þannig að ef einhver hefur áhuga er bara að senda mér póst.


