Glænýr og glettilega góður lesari frá Google
Google hefur kynnt til sögunnar nýja og endurbætta útgáfu af rss-lesaranum Google Reader við almennt jákvæðar undirtektir netverja. Miklar breytingar hafa orðið á lesaranum frá upphaflegri útgáfu sem þótti með afburðum tilkomulítil og óspennandi svo ekki sé meira sagt.
RSS-lesari kemur að góðum notum fyrir þá sem vilja fylgjast með uppfærslum á vefjum án þess að þurfa heimsækja þá reglulega. Þannig nýti ég t.d. Google Reader daglega til þess að fylgjast með uppfærslum á alls 94 vefjum. Í hvert sinn sem ég skrái mig inn í Google Reader fæ ég yfirlit yfir nýjustu færslunar á þessum vefjum og get þannig á einfaldan hátt fylgst með því sem þar er að gerast. Ég get einnig merkt færslur sem mér finnast sérstaklega áhugaverðar og tengt eitt eða fleiri lykilorð/tög við þær til að eiga auðveldara með að finna síðar. RSS lesarar geta verið netbundir (eins og Google reader og fleiri) eða forrit sem setja þarf upp á tölvu viðkomandi notanda. Ég er mun hrifnari af netbundnum rss-lesurum enda notkun þeirra ekki bundin við ákveðna tölvu.
RSS lesarar virka þannig að þeir lesa upplýsingar úr RSS skrám (einfaldar xml skrár) sem vefirnir búa til. RSS skrár eru einskonar efnisyfirlit (stundum notað orðið efnisveita) yfir efni á vefjum og eru mjög algengar í dag, s.s. á bloggvefjum og fréttavefjum. Þannig er einfalt að sækja RSS skrár frá stórum fréttaveitum eins og mbl.is, ruv.is og Menntagátt en ekki eru þeir alveg jafn framsæknir á visir.is. RSS skrár eru uppfærðar reglulega og innihalda því alltaf nýjustu færslurnar á viðkomandi vef.
Hagræði RSS lesara felst fyrst of remst í því að gera mér kleift að safna saman því sem kalla má áskriftum að RSS efnisveitum og birta útdrætti úr færslum auk þess að fylgjast með því fyrir mig hvað ég hef lesið og hvað enn er óskoðað.
RSS skrár eru til fleiri hluta nytsamlegar en fylgjast með uppfærslum á vefjum með aðstoð þar til gerðra RSS-lesara. Þær má einnig nota til þess að miðla efni á milli vefja og t.a.m. er einfalt að varpa efni frá einum vef yfir á annan með því að hagnýta RSS skrár. Moodle námsumhverfið gerir mér t.d. kleift að birta færslur af ólíkum vefjum inn á einstaka námskeiðum/áföngum sem ég kenni. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá hvernig ég varpa nýjustu færslunum úr blogginu mínu inn í áfanga sem ég kenni við Kennaraháskóla Íslands. Þetta er mjög öflugur kostur og vel þess virði að skoða nánar. Ímyndið ykkur t.d. kennara sem hefur viðað að sér fjölda spennandi vefja og vill gera efni þeirra aðgengilegt nemendum. Á þennan hátt er hægt að birta nemendum nýjustu færslur þessara vefja í sjálfu námsumhverfinu og þær uppfærast reglulega efnir því sem nýju efni er bætt við. Hugsið ykkur möguleikana.

Ég get ekki látið staðar numið í þessari stuttu umfjöllun um RSS án þess að minnast lítillega á OPML skrár, en þær innihalda upplýsingar um eina eða fleiri RSS skrár. RSS-lesarar eins og Google Reader geta bæði myndað OPML skrár eða flutt inn utanaðkomandi OPML skrár. Þetta er öflugur kostur sem gerði mér t.a.m. kleift að vista allar upplýsingar um RSS áskriftirnar mínar í Bloglines lesaranum í einni skrá og flytja svo yfir í Google Reader. Þeir sem vilja kynna sér OPML nánar ættu einnig að heimsækja þennan vef þar sem notendur geta deilt með sér OPML skrám.
Bloglines er afar vinsæll netbundinn rss-lesari en hætt er við að notendum hans komi til með að fækka með tilkomu Google Reader. Ég hef allavega skipt yfir og sé ekki eftir því enn sem komið er.



November 5th, 2006 at 2:25
[...] Fjalar fjallar mun tarlegar um a sem essi RSS lesari hefur upp a bja frslu sinni [...]