Betaprófanir hafnar á Moodle 1.7

Skrifað 10. October 2006
Flokkur: Moodle
Engar athugasemdir frá lesendum

MoodleHafnar eru betaprófanir á útgáfu 1.7 af Moodle námsumhverfinu sem nú er hægt að sækja á moodle.org vefnum. Moodle 1.7 inniheldur margvíslegar nýjungar og endurbætur þar sem án efa ber hæst nýtt kerfi til að halda utan um hlutverk notenda og heimildir (roles and permissions). Þess má geta að forritun heimildakerfisins er fjármögnuð af Opna háskólanum í Bretlandi og er hluti af framlagi þeirra til Moodle.

Frá og með útgáfu 1.7 styður Moodle við MS-SQL og Oracle gagnagrunna og til stendur að bæta við stuðningi við fleiri gagnagrunna á næstunni. Nokkar breytingar hafa einnig orðið á einstaka kerfiseiningum í hinni nýju útgáfu, s.s. gagnagrunnseiningunni, innlögninni (lesson module) og prófakerfinu. Hægt er að lesa um allar breytingar í Moodle 1.7 hér.

Moodle 1.7 útgáfan er nú þegar stöðug og vel nothæf. Engu að síður er ekki mælt með því að hún sé nýtt í kennslu fyrr en að loknum betaprófunum. Betaprófanir eru í höndum notenda og eru allir Moodle áhugamenn hvattir að sækja nýju útgáfuna sem fyrst, prufukeyra og skila athugasemdum og ábendingum ef einhverjar eru.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni