Tilraunavefurinn, Wikivagninn og fleiri spennandi verkefni

Skrifað 14. October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

elearningawards2006.jpgÍ gær, föstudaginn 13. okt, rann út fresturinn til að skrá verkefni sem tengjast námi á Neti í árlega verðlaunasamkeppni Evrópska skólanetsins. Nú er ljóst að fjögur íslensk verkefni verða meðal þeirra 393 verkefna sem skráð voru til keppni í ár. Eftirtektarvert er að umtalsvert færri verkefni eru skráð til leiks í ár en venjulega. Þannig voru yfir 700 verkefni send til keppni í fyrra. Það má því leiða að því líkur að skráningarfresturinn verði framlengdur, en auðvitað er ekkert hægt að fullyrða um slíkt.

Eftirfarandi verkefni íslensk hafa verið skráð til leiks í verðlaunasamkeppni Evrópska skólanetsins um nám á Netinu.

nattura.jpg Náttúrufræði við Borgarhólsskóla
Vefur náttúrufræðikennslu á unglingastigi. Hefur að mestu leyti komið í stað kennslubóka og inniheldur texta, tal, myndir og myndskeið. Frábær sýnishorn af verkum nemenda og greinilegt að þarna er verið að vinna virkilega gott starf.
wikivagninn.jpg Wikivagninn
Wikivefur (Mediawiki) sem settur hefur verið upp hjá Kennaraháskóla Íslands í tengslum við Wikinám kennaranema og kennara. Wikivefir eru mjög spennandi tæki í skólastarfi og allt of lítið notaðir. Gott framtak hjá KHÍ.
tilraunavefurinn.jpg Tilraunavefurinn
Á Tilraunavefnum er safnað saman öllum mögulegum tilraunum og þær sýndar með stuttum myndskeiðum. Tilraunirnar geta verið einfaldar svo allir geti endurtekið þær eða þær geta verið flóknar og þarfnast sérfræðinga eða sérstaks tilraunabúnaðar. Tilraunavefurinn er verkefni innan Háskóla Íslands og má geta þess að opna vefumsjónarkerfið Joomla er notað til þess að halda utan um vefinn.

islenskuskolinn.jpg Íslenskuskólinn
Íslenskuskólinn er skóli á Netinu fyrir íslensk börn á leik- og grunnskólaaldri sem búsett eru erlendis. Íslenskuskólinn er afrakstur verkefnis sem menntamála- og utanríkisráðuneytið buðu út 2001 og Símenntunarstofnun Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) tók að sér. Verkefnið, Íslenska á neti, fólst í því að búa til námsumhverfi á vef sem væri íslenskt og miðað við þarfir barna á grunnskólaaldri

Við íslendingar höfum átt góðu gengi að fagna í þessari verðlaunasamkeppni evrópska skólanetsins og miðað við framlög þessa árs er full ástæða til bjartsýni.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni