Internet Explorer 7 er væntanlegur - er vefurinn þinn tilbúinn?

Skrifað 18. October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

ie_logo.jpgMicrosoft hefur gert heyrikunnugt að nýjasta kynslóð Internet Explorer vefskoðarans, þ.e. Internet Explorer 7, verði fullbúin og aðgengileg Windows notendum nú í októbermánuði. Netverjar hafa þegar fengið tækifæri til þess að kynna sér nýju útgáfuna á ýmsum vinnslustigum og þrátt fyrir fjölmargar nýjungar og endurbætur hafa viðtökurnar á heildina verið lítt uppörvandi fyrir Microsoft.

Ég vil taka það fram að afstaða mín til Internet Explorer er skýr og skiptir þá ekki máli um hvaða útgáfu ræðir. Internet Explorer er meingallaður vefskoðari og ég mæli hiklaust með því að notendur skipti hið fyrsta yfir í aðra valkosti, s.s. Firefox sem ég sjálfur nota. Ég gæti eitt löngu máli í að skýra þá afstöðu mína en læt duga að vísa í takmarkaðan stuðning Microsoft við alþjóðlega staðla, en einleikur þeirra á þeim vettvangi hefur í gegnum tíðina reynst vefhönnuðum og almennum notendum óþægur ljár í þúfu.

Því verður hins vegar ekki neitað að markaðshlutdeild IE vafrans er slík að það er óhugsandi annað en að taka tillit til hans þegar vefur er hannaður. Þrátt fyrir aukinn áhuga netverja á Firefox, Opera og Safari er Internet Explorer nærri allsráðandi og því miður fyrirsjáanlegt að hann verði það í náinni framtíð.

Hinni nýju útgáfu IE verður dreift með sjálfvirkum uppfærslum Windows stýrikerfisins nokkrum vikum eftir að hún hefur verið gerð aðgengileg á vef Microsoft. Notendur hafa kost á því að hindra sjálfvirka uppfærslu IE netvafrans og gera það með því að sækja þar til gerðan hugbúnað á vef Microsoft. Fæstir munu hins vegar grípa til þess ráðs.

Nú má fastlega gera ráð fyrir því að dreifingarmáti IE hafi það í för með sér að upptaka IE7 verði miklu mun hraðari en áður hefur þekkst í heimi vefvafra. Það er því afar brýnt að vefhönnuðir og ritstjórar vefja kanni vefi sína rækilega með tilliti til hinnar nýju útgáfu eins og ítrekað er á vef Microsoft:

Internet Explorer 7 is highly compatible with the Web sites, extensions, and applications out there today and we have made significant improvements in security, rendering, and usability. However, some of these improvements and new features may cause some sites to not render properly or change how the user interacts with your site, extension or application.

Til gamans kannaði ég nokkra vefi grunn- og framhaldsskóla og komst að því mér til mikillar ánægju að undantekningarlaust birtust þeir réttir í IE7. Vefumsjónarmenn skóla- og kennsluvefja ættu hins vegar að hafa vaðið fyrir neðan sig og sækja IE7 hið fyrsta og athuga hvort vafrinn nýi hafi einhver áhrif á birtingu þeirra og virkni.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni