Slideshare er opið almenningi

Skrifað 23. October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

slideshare_logo.gifSlideshare er vefbundin þjónusta fyrir Powerpoint og Open Office notendur sem vilja miðla efni sínu á svipaðan hátt og netverjar gera á YouTube eða öðrum álíka vefjum.

Slideshare hefur undanfarnar vikur verið í notendaprófunum og aðgangur því takmarkaður. Prófunum er nú lokið og vefurinn opinn öllum almenningi. Ég hvet kennara til að kynna sér þjónustuna sem þarna er í boði, en hún er endurgjaldslaus.

Hér má t.a.m. sjá hvernig Salvör Gissurardóttir notar Slideshare til þess að koma á framfæri glærum frá Netmálstofu um opinn hugbúnað. Sjálfsagt er að geta þess að Netmálstofan tókst með afbrigðum vel. Að sjálfsögðu má nota Slideshare to fjölmargra annara sem hafa ekkert með nám og kennslu að gera.

Slideshare styður við ppt, pps og odp skráarsniðin. Aðgangstakmarkanir að efni sem hýst er á vefnum eru engar, en það stendur víst til bóta. Efni sem deilt er á Slideshare er því aðgengilegt öllum notendum. Það má hins vegar verja efnið með Creative Commons leyfum sem er mjög spennandi kostur.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni