Skemmtileg músarþjálfun

Skrifað 26. October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í kennslu minni á starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti stend ég ósjaldan frammi fyrir því að nemendur þurfa á að halda kennslu og/eða þjálfun í notkun tölvumúsar.

Grundvallarleikni í notkun tölvumúsar felur m.a. í sér að geta hreyft bendil á skjá markvisst og af mikilli nákvæmni og geta smellt eða tvísmellt á misstóra hluti sem þar er að finna. Þá þer það er ekki síður mikilvæg leikni að draga og sleppa hlut á skjá með músinni, leikni sem ekki öllum er sjálfgefin. Samhliða þessari grunnþjálfun er einnig mikilvægt að nemendur öðlist hraða og öryggi í þessum aðgerðum.

Fjölmargar leiðir eru færar þegar kemur að kennslu og þjálfun í notkun tölvumúsar. Ég get t.a.m. bent á áhugaverðan hugbúnað sem gott er að grípa til. Sjálfur hef ég verið að þreyfa mig áfram með að nota leiki í þessari þjálfun og hefur það reynst vel. Leikir hafa þann kost að þeir krefjast oft mikillar og fjölbreyttrar leikni í meðferð músarinnar ásamt því að vera grípandi og halda nemendum vel við efnið. Að sjálfsögðu henta ekki allir leikir til þessa brúks. Sjálfsagt er að forðast leiki sem innihalda ofbeldi eða vafasama iðju hverskonar og einnig er mikilvægt að sniðganga vefi sem taka á móti netverjum með sprettigluggum og auglýsingaflóði.

Hér eru þrír skemmtilegir og mjög hentugir leikir sem ég nota gjarnan með nemendum mínum sem þurfa á músarþjálfun að halda:

Hringir Hringleikur
Hér er markmiðið að halda músinni inni í hringjunum þangað til þeir hafa náð tiltekinni stærð, en þá gefa þeir frá sér hljóð í takt við tónlistina og hverfa. Músarhnappurinn er ekki notaður í þessum leik og því hentar hann ágætlega til að þjálfa nemendur í að rekja og staðsetja músina á skjánum. Ekki spillir fyrir skemmtileg tónlistin.
   
speed.gif Tölurnar
Það er bara ein regla í þessum leik. Smelltu á tölurnar í réttri röð og gerðu það eins hratt og þú mögulega getur. Nemendur hafa alltaf gaman af þessum leik og hann er góð þjálfun í músarfærni þar sem vinstri músarhnappur er kominn með í spilið. Leikurinn fylgist einnig vel með árangri spilara og hægt er að skrá hjá sér tíma og hittnihlutfall.
   
kickups.jpg Boltaleikurinn
Þetta er erfiðasti leikurinn og einungis á færi þeirra sem náð hafa góðum tökum á músinni. Markmiðið er að halda boltanum á lofti með því að smella stöðugt á hann með vinstri músarhnapp. Hver smellur sem hittir boltann gefur eitt stig þannig að hægt er að fylgjast með og skrá árangur.

Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman