Hlutverk og heimildir í Moodle 1.7

Skrifað 08. November 2006
Flokkur: Moodle
Ein athugasemd frá lesendum

MoodleÚtgáfa 1.7 af Moodle námsumhverfinu er komin út og inniheldur fjölmargar nýjungar ásamt leiðréttingum og minniháttar lagfæringum. Ein mikilvægasta nýbreytnin í Moodle 1.7 felst í gagngerri endurskoðun á aðgengi notenda að hinum ýmsu þáttum kerfisins með það í huga að skapa mun meiri sveigjanleika og möguleika en áður hafa þekkst.

Fyrri útgáfur Moodle bjuggu við þá takmörkun að hlutverk notenda innan kerfisins voru fyrirfram skilgreind og fastmótuð. Þannig var að skilgreina notendur í eitt af eftirfarandi hlutverkum: nemendur, kennarar, áfanga- eða kerfisstjórar. Hverju hlutverki fylgdi svo ákveðið aðgengi að Moodle og ákveðnar heimildir. Nemendur höfðu m.ö.o. mun takmarkaðri aðgang að námsumhverfinu heldur en kennarar, sem aftur á móti bjuggu við fjölmargar takmarkanir samanborið við kerfisstjóra. Þetta er að sjálfsögðu eðlilegur hlutur en það sem verra var, það var engin leið að hafa áhrif á þessa hlutverkaskipan og skilgreina á eigin forsendum hvaða aðgerðir t.d. kennari getur framkvæmt og hvað hann getur ekki.

Sveigjanleg hlutverkaskpan

Í Moodle 1.7 er kynnt til sögunnar mun sveigjanlegri kerfi á hlutverkaskipan, en hlutverk (role) er hægt að skilgreina sem samansafn heimilda (permissions) sem hafa gildi fyrir allan vefinn eða afmarkaða hluta hans. Nú er það hægðarleikur fyrir kerfisstjóra eða aðra sem til þess hafa heimild að móta hin ólíkustu hlutverk að vild og skipa notendur í þau eftir hentugleik. Tökum dæmi.

Kennari er ágætt dæmi um afmarkað hlutverk sem heimilar notendum (þ.e. þeim sem skipað er í þetta ákv. hlutverk) að framkvæma fyrirfram ákveðna hluti en aðra ekki. Um leið og þetta hlutverk hefur verið skilgreint í Moodle er hægt að skipa ákveðinn notanda eða notendum í það, t.d. innan áfanga og gera viðkomandi notanda þar með að “kennara” í áfanganum. Einnig er hægt að skipa notanda í hlutverkið kennari innan einstaka flokk áfanga og gera hann þannig að kennara í öllum áföngum sem flokknum tilheyra. Sveigjanleiki þessa kerfis er svo mikill að hægt er að skilgreina ákveðinn nemanda sem kennara í einungis einni umræðu innan áfanga sem hann er skráður í. Innan þeirrar kerfiseiningar hefur viðkomandi nemandi þá sömu réttindi og kennari. Þá getur einn og sami einstaklingurinn verið í mismunandi hlutverkum eftir því hvar hann er staddur í kerfinu.

Svæði/hlutar

Hin nýja hlutverkaskipan í Moodle grundvallast einnig á stigskiptingu og skilgreind hafa verið fimm svæði eða hlutar (context) sem eru tengd hlutverkaskipaninni. Hlutverkaskipan erfist frá svæðum sem eru ofar í röðinni til þeirra sem neðar liggja. Moodle vefur skiptist í eftirfarandi hluta:

  1. Allur vefurinn
  2. Áfangaflokkar
  3. Undirflokkar áfanga
  4. Einstaka áfangar
  5. Blokkir og viðföng innan áfanga

Það er einmitt þessi stigskipting sem gerir ofangreinda lýsingu á hlutverkaskipan innan afmarkaðra kerfiseininga mögulega.

Virkni

Hver einstaka eining innan Moodle býr yfir ákveðinni getu eða virkni (capability). Til að mynda er hægt að senda innlegg í umræður og svara innleggjum sem fyrir eru, en slíkar aðgerðir eru dæmi um virkni eða getu viðkomandi kerfiseiningar sem getur verið mjög ólík eftir því hvaða kerfiseining á í hlut. Hver einstök virkni kerfiseininga er tengd við hlutverk á þann hátt að það verður að ákvarða hvort hlutverkið heimilar notendum þessa ákveðnu virkni eða ekki. Svæðisskipanin ákveður svo hvar þessi virkni er heimiluð.

Möguleikar

Nýja heimildakerfið er frábær viðbót við Moodle námsumhverfið en hönnun þess er kostuð af Opna háskólanum í Bretlandi. Með tilkomu þess opnast allskonar möguleikar sem áður hafa verið fjarlægur draumur. Í Moodle 1.7 er einfalt að gefa nemendum auknar heimildir og leyfa þeim t.a.m. að taka yfir stjórn á umræðum, eða jafnvel gefa þeim réttindi til að stofna eigin umræður. Svo fátt eitt sé nefnt.

Moodle 1.7 er enn eitt skrefið í stöðugri framþróun Moodle námsumhverfisins en næsta útgáfa, Moodle 1.8, er væntanleg í janúar 2007. Íslenskun á nýjum hugtökum og almenn endurskoðun á þýðingunni er langt komin og gert er ráð fyrir að innan nokkurra daga geti notendur uppfært íslenska tungumálapakkan með þar til gerðu verkfæri í Moodle. Stefnt er að því að taka Moodle 1.7 í notkun á kennsluvef Fjölbrautaskólans í Breiðholti á vorönn 2007. Moodle 1.7 má sækja á opinberu heimili Moodle á vefnum, www.moodle.org .


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “Hlutverk og heimildir í Moodle 1.7”

  1. sfjalar - » Ár Moodle skrifar:

    [...] Moodle er í örri þróun og voru tvær nýjar útgáfur opinberaðar á árinu sem innihéldu báðar umfangsmiklar breytingar. Útgáfa 1.6 fól í sér yfirfærslu í UTF-8 stafasettið auk þess sem íslensk þýðing varð nú aðgengileg sem hluti af kerfinu. Stærsta breytingin í Moodle 1.7 felst í nýju hlutverka og heimildakerfi. Báðar innihalda útgáfurnar fjölda smærri nýjunga og lagfæringa hverskonar. Þess má geta að útgáfa 1.8 er væntanleg í upphafi næsta árs. [...]

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni