Ég lagði fyrir nemendur eftirfarandi verkefni:
- Ferðastu um heiminn með aðstoð Google Earth og leitaðu eftir áhugaverðum stöðum í mikilli nærmynd. Veldu tvær staðsetningar og vistaðu þær.
- Opnaðu Flickr Motivator og rammaðu myndina inn, skráðu titil og settu nafn þitt undir.
- Skilaðu myndinni á Flickr myndavefinn þinn.
- Sendu myndina í Artwork Earth hópinn á Flickr.
Verkefnið er hluti af nýjum áfanga í upplýsingatækni sem hefur verið í þróun við FB á haustönn. Í áfanganum er lögð áhersla á notkun hugbúnaðar sem annað hvort er opinn (open source) eða ókeypis. Moodle námssumhverfi skólans leikur einnig stórt hlutverk í kennslunni og er það nýbreytni í notkun hefðbundinna námsumhverfa á Neti hér á landi að nýta þau sem verkfæri í námi fólks með fötlun eða mjög sértæka námsörðugleika. Áætlað er að tilraunakennsla í áfanganum ljúki nú í haust og mun ég í framhaldinu bjóða öðrum kennurum, hvort sem þeir kenna á starfsbrautum framhaldsskólanna eða á öðrum vettvangi, aðgang að efninu. Helst vil ég koma á samvinnu við aðrar starfsbrautir eða aðra skóla sem hafa áhuga á því að kenna áfangann í heild sinni.
Hér fyrir neðan má sjá brot af afrakstri verkefnavinnu nemenda.
P.S
Artwork Earth myndasafnið á Flickr er opið öllum sem áhuga hafa að vinna samskonar verkefni og senda á Netið.









Frábær hugmynd Fjalar og mjög fallegar myndir !!
Ótrúlega öflugt !!!! Góð hugmynd og ég er viss um að þú hefur fengið marga áhugasama nemendur til að vinna í þessu
!!!
Ótrúlega einfalt þegar það er sett svona upp en…. töff að láta sér detta þetta í hug.