MSN til aðstoðar

Skrifað 18. November 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

msn_messenger.gifMSN samskiptaforritið frá Microsoft er án efa eitt hið vinsælasta sinnar tegundar og sérstaklega er það mikið notað af nemendum á öllum skólastigum, eins og kennarar vafalaust vita. Hitt er minna þekkt, þ.e. sá möguleiki MSN að heimila notanda að taka yfir stjórn á tölvu tengiliðar t.a.m. með það í huga að aðstoða hann eða leiðbeina. Þessi möguleiki getur komið að góðum notum í fjarnámi þar sem nemandi þarf nauðsynlega á aðstoð kennara að halda.

Fjaraðstoð (remote assistance) er hluti af virkni XP stýrikerfisins og ein leið til þess að virkja hana er að nota MSN samskiptaforritið. Aðrar leiðir eru einnig mögulegar, t.d. má einnig nota tölvupóst. Fjaraðstoð virkar þannig að sá aðilinn sem aðstoðar þarfnast óskar eftir henni í gegnum MSN samskiptaforritið. Hér er stutt lýsing á ferlinu:

  1. Aðilinn sem þarfnast aðstoðar byrjar fyrst á því að óska eftir henni. Til þess eru tvær leiðir færar. Hann getur óskað eftir aðstoð um leið og hann tengist viðkomandi notanda eða hann getur fyrst tengst honum (þ.e. hafið samskipti í gegnum MSN) og síðan óskað eftir fjaraðstoð. Í bæði skiptin er valið Actions-Request remote assistance í MSN.
  2. Þegar óskað er eftir fjaraðstoð fær viðkomandi aðili skilaboð á MSN-inu þess eðlis að aðstoðar hans sé krafist. Hann getur valið að samþykkja eða hafna aðstoðinni. Ef hann samþykkir er tengingu komið á milli tölvanna tveggja. Athugið að ýmislegt getur valdið því að tölvurnar nái ekki tengingu, s.s. stillingar á eldveggjum.
  3. Eftir að tengingu hefur verið komið á getur sá sem aðstoðina veitir tekið yfir tölvu þess sem óskaði eftir aðstoðinni og leiðbeint honum í gegnum vandamálið. Hann getur sent honum skrifleg skilaboð í gegnum viðmót sem líkist MSN inu eða talað við hann. Einnig er hægt að nýta Skype netsímann samhliða MSN fjaraðstoð.

Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni