Stillingar.is

Skrifað 21. November 2006
2 Athugasemdir frá lesendum

Á ráðstefnunni “Aðgengi að netinu: Hvar erum við stödd”, sem haldin var þann 14. nóv. síðastliðinn, kynnti Hugsmiðjan nýja þjónustu sem nefnist Stillingar.is.

Stillingar.is er vefþjónusta fyrir eigendur vefsvæða sem vilja koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna lesblindu, sjóntruflana eða sjónskerðingar, og þarf að geta valið lita- og letursamsetningu sem hentar þeim.

Þjónustan virkar á þann hátt að netverjar setja saman þær stillingar sem henta þeim persónulega, s.s. hvaða samsetningu leturgerðar, texta, og bakgrunnslita eða línubils þeir kjósa. Vefsvæði sem nýta sér þjónustu Stillingar.is sækja svo þessar upplýsingar með sjálfvirkum hætti úr miðlægum grunni Stillingar.is. Hver vefnotandi þar því einungis að velja sína liti og leturgerðir einu sinni.

Hugsmiðjan er án ef það fyrirtæki sem lagt hefur hvað mesta áherslu á aðgengi sem flestra að þeim vefjum sem fyrirtækið hefur komið að. Hugsmiðjan á heiður skilið fyrir þetta frábæra framtak, en þess má geta að þjónustan er ókeypis fyrir vefi í eigu einstaklinga, einyrkja, góðgerðarsamtaka eða smærri félagasamtaka. Hinn almenni vefnotandi greiðir ekkert fyrir þjónustuna.

Það verður spennandi að kynna sér Stillingar.is nánar en fyrstu kynni lofa mjög góðu. Frekari upplýsingar um Stillingar.is má finna á vef Más Örlygssonar.


Tengt efni

  • No Related Post

2 athugasemdir við “Stillingar.is”

  1. Már skrifar:

    Takk fyrir kynninguna. Þú þarft sjálfur endilega annað hvort að smella svona Javascript hnappi á síðuna þína, eða að setja upp WordPress viðbótina hans Borgars

    Annars vil ég bara benda þér á eitt smáatriði: http://mannanofn.com/lysing.php?id=1891 :-)

  2. sfjalar skrifar:

    Ég ætla gefa mér tíma um helgina til að skoða þetta nánar. Frábært að hafa aðgang að Wordpress “plugin”.

    ps.
    Takk fyrir ábendinguna ;)

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni