Á haustönn 2006 er m.a. kennt námskeiðið “Open Source Development and Distribution of Digital Information: Technical, Economic, Social, and Legal Perspectives” við Berkeley háskólann í Bandaríkjunum. Kennarar eru þau Pamela Samuelson og Mitchell D. Kapor.
Hver sem áhuga hefur getur fylgst með framvindu námskeiðsins þar sem allt efni þess er aðgengilegt á Netinu:
- Hér getur að líta kennsluáætlunina, lesefni og yfirlit yfir verkefnaskil. Mediawiki er notað við framsetningu þessa efnis og er það góð hugmynd. Glærur fyrirlestra eru einnig aðgengilegar á Wikikerfinu hér.
- Hér eru aðgengilegir allir fyrirlestrar námskeiðsins á mp3 og Real Media sniði. Takið eftir að hægt fyrirlestrana er hægt að sækja beint í iTunes. Fyrirlestra má einnig sækja með aðstoð RSS-lesara.
Góða skemmtun


