Close

Svona gerum við

Námsefni

Námsgarðurinn

Háskólinn í Leicester hefur opnað mjög svo litríkan og spennandi vef sem nefndur er Media Zoo eða námsgarðurinn og er honum ætlað að hvetja kennara til að hagnýta upplýsingatæknina í starfi sínu. Námsgarðinum er skipt fjögur aðskild svæði sem hvert hefur sín sérkenni og inniheldur ólíkar tegundir tæknilausna. Í námsgarðinum má finna allt frá þrautreyndum hugbúnaði yfir í tækninýjungar sem eru í mikilli þróun en þykja lofa góðu. Að sjálfsögðu er öllum opinn aðgangur.

namsgardurinn.jpg

Svæðin í námsgarðinum eru eftirfarandi:

  • Pet’s Corner
    Þrautreyndar lausnir sem reynst hafa vel eins og t.d. námsstjórnunarkerfi
  • Breeding Area
    Nýjar tegundir lausna sem eru að skjóta upp kollinum og þykja bjóða upp á spennandi möguleika í námi og kennslu. Hér má t.d. nefna Podcasting.
  • Safari Park
    Hér er verið að sýna hvernig hægt er að nota tilbúnar lausnir og þekkingu á nýjan og spennandi hátt, t.d. til þess að ná til ólíkra hópa nemenda.
  • Exotics House
    Hér er fengist við framtíðarmöguleika netbundins náms í víðum skilningi.

Ég er dálítið hrifinn af þessu framtaki og sérstaklega framsetningunni. Garðurinn er reyndar frekar tómlegur en vonandi á meira efni eftir að bætast við. Ég vil einnig sjá meiri gagnvirkni notenda, t.d. möguleikan á því að spjalla við aðra gesti um það sem fyrir augun bera.


Tengt efni

Skráðu athugasemd