ConceptShare - skapandi samvinnuvettvangur

Skrifað 01. December 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

cslogo.gifConceptShare er Netbundið samvinnuverkfæri sem nýlega var hleypt af stokkunum og hefur upp á að bjóða mjög spennandi möguleika í námi og kennslu þrátt fyrir að markhópurinn sé nokkur annar.

Líklegast er einfaldast að lýsa ConceptShare sem gagnvirkum vettvangi fyrir einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir sem vilja deila hugmyndum sínum eða hönnun með viðskiptavinum eða samstarfsaðilum. Þjónustan er sem sniðin að vinnu þar sem lögð eru fram drög eða hugmyndir og óskað eftir athugasemdum og ábendingum. ConceptShare færir slíka vinnu yfir á Netið það sem aðilar sameinast um hönnunina innan afmarkaðra verksvæða og skrá inn athugasemdir eða svara athugasemdum annarra. Notendur hafa einnig við höndina einföld teikniverkfæri og geta með þeim betur komið hugmyndum sínum á framfæri. Úrval verkfæra er reyndar frekar fátæklegt sem stendur, en þjónustan er í mikilli þróun og fleiri verkfæri væntanleg í náinni framtíð. Hér að neðan má sjá skjámynd úr kerfinu.

conceptshare.jpg

Ég get ímyndað mér að auglýsingastofur eða fyrirtæki sem standa í vefhönnun gætu vel hugsað sér að nýta ConceptShare með viðskiptavinum, en þjónusta sem þessi er einnig kjörin í skólastarfi. Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir helstu þætti kerfisins:

  1. Búðu til verksvæði (WorkSpace)
    Vinnusvæði geta verið opin (public) eða lokuð (private). Fjöldi vinnusvæða takmarkast af áskriftarkostum. Þegar valin er ókeypis áskrift er einungis hægt að virkja eitt vinnusvæði í einu af þeim fjórum sem felast í skráningunni.
  2. Sendu mynd eða skráðu inn slóð að vef
    ConceptShare getur tekið á móti myndum á jpg, gif og png sniði (stuðningur við DWG snið er væntanlegur). Þegar vefslóð er gefin upp er vefnum breytt yfir í mynd sem síðan er hægt að vinna með. Einnig er hægt að hlaða upp pdf skjölum svo lengi sem þau eru ekki læst. Hvert verksvæði getur innihaldið ótilgreindan fjölda mynda eða vefja.
  3. Skráðu samstarfsaðila og sendu þeim boð um þátttöku.
    Þetta gerir þú með því að skrá tölvupóst þeirra sem koma að verkefninu eða velja viðkomandi úr lista ef þú hefur skráð þá áður.

Notendaviðmót ConceptShare er vandað og einfalt í notkun og það tekur stuttan tíma að læra á alla helstu virkni kerfisins. ConceptShare inniheldur einfalt spjallkerfi þannig að þátttakendur geta sent textaskilaboð sín á milli á meðan unnið er að hönnun. Að sjálfsögðu er ekkert því til fyrirstöðu að nýta Skype eða annan slíkan hugbúnað samhliða ConceptShare.

ConceptShare er eins og hannað fyrir nemendur og kennara. Það er öflugt verkfæri til að vinna með verkefni nemenda, deila hugmyndum og fá endurgjöf og athugasemdir. Ég sé kennara fyrir mér nota þessa þjónustu með nemendum í tengslum við verkefnavinnu t.d. á þann hátt að nemendur setji upp eigin verksvæði þar sem kennari og jafnvel aðrir nemendur geta komið að hönnun verkefnisins með gagnrýnum athugasemdum og ábendingum.

Hér má sjá stutta kynningarmynd um ConceptShare

Það er mikilvægt að átta sig á því að ConceptShare er ekki fjarfundarkerfi og áhersla er lögð á ósamstillta vinnu (asynchronous) jafnt sem samstillta (synchronous). Þjónusta eins og ConceptShare kemur að sjálfsögðu aldrei í stað hefðbundinna funda en það eykur möguleikana á samskiptum ekki síst þegar mikilvægt er að virkja dreifðan hóp í hugmyndavinnu.

Conceptshare krefst Flash 8. Hægt er að skrá sig fyrir ókeypis aðgangi og fylgir honum 5MB geymslupláss á vefþjóni fyrirtækisins. Aðrar áskriftarleiðir byggja á mánaðargjaldi og eru allar upplýsingar um þær að finna hér.

ConceptShare er ekki eina þjónustan sinnar tegundar. Thinkature er ágætt dæmi um svipaða nálgun.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni