97% vefsvæða standast ekki lágmarks kröfur um aðgengi
Alþjóðdagur fatlaðra var haldinn hátíðlegur þann 3. des. sl. og var yfirskrift dagsins að þessu sinni aðgengi að rafrænum upplýsingum eða “E-accessibility”. Takið eftir að ég nota ekki orðalagið “aðgengi fatlaðra” því traust aðgengi að rafrænum upplýsingum er hagsmunamál okkar allra.
Í kjölfar Alþjóðadags fatlaðra, þ.e. í dag 5. des., birti Nomensa ráðgjafaþjónustan skýrslu með niðurstöðum fyrstu alþjóðlegu úttektarinnar á aðgengi að upplýsingum á Netinu. Skýrslan var unnin fyrir Sameinuðu þjóðirnar og eru niðurstöðurnar vægt til orða tekið dapurlegar. Dæmið sjálf:
- 93% vefja birtu engar eða ófullnægjandi textalýsingar með myndrænu innihaldi (ALT texta).
- 73% vefja sem studdust við JavaScript þegar um var að ræða mikilvæga virkni og gerðu þannig u.þ.b. 10% netverja nánast ómögulegt að komast að upplýsingum sem vefirnir höfðu að geyma.
- 78% vefja gerðu fólki sem á erfitt með sjón, t.a.m. vegna litblindu, erfitt með að nálgast upplýsinagr þar sem forgrunns og bakgrunnslitir voru illa valdir.
- 98% vefja voru ekki kóðaðir samkvæmt alþjóðlegum stöðlum
- 97% vefja notuðust við fastar leturstærðir sem kemur í veg fyrir að fók geti valið sér þá leturstærð sem hentar.
- 89% vefja voru ekki rétt uppsettir, t.a.m. hvað varðar notkun á “Heading” sem getur gert netverjum erfiðara um vik að rata um innihald vefins.
- 87% vefja opnuðu sprettiglugga án þess að aðvara notendur fyrst og ollu þannig sjóndöprum netverjum sem notast við sérstakan stækkunarhugbúnað erfitt um vik.
Alls voru 100 vefsvæði frá 20 löndum könnuð (Ísland var ekki þar á meðal) og mátti raða vefjunum í eftirfarandi 5 flokka:
- Ferðamennska (flugfélög)
- Fjármál (bankar)
- Fjölmiðlar (dagblöð)
- Stjórnsýsla (vefir stofnana)
- Viðskipti (verslanir)
Á heildina litið ollu niðurstöður könnunarinnar miklum vonbrigðum. Einungis þrír vefir stóðust notendaprófunina:
Þegar þetta er skrifað er skýrslan ekki aðgengileg á Netinu og þarf að sækja sérstaklega um aðgang að henni hér. Í ljósi viðfangsefnisins og mikilvægi þess finnst mér þetta afskaplega skrítið fyrirkomulag svo ekki meira sé sagt.
p.s.
Það kom mér dálítið á óvart að Sjálfsbjörg skuli ekki hafa kosið að veita hvatningarverðlaun einhverjum þeim aðilum sem eru að gera svo frábæra hluti hvað varðar aðgengi að Netinu hér á landi þar sem dagurinn bar nú þessa ákveðnu yfirskrift. Ég gæti til að mynda bent á Hugsmiðjuna. Ekki ætla ég nú samt að gera lítið úr aðgengi að kaffihúsum.



December 6th, 2006 at 1:33
Ætli þau hafi ekki bara séð að við þurftum enga sérstaka hvatningu.