Swivel – YouTube fyrir tölfræði

Skrifað 07. December 2006
Flokkur: web 2.0
Ein athugasemd frá lesendum

Swivel er opin vefþjónusta þar sem þátttakendur deila með sér tölfræðilegum gögnum á svipaðan hátt og notendur YouTube deila með sér myndskeiðum. Fyrirtækið opnaði dyr sínar almenningi í dag og eftir umfjöllun á TechCrunch var aðsóknin slík að vefþjónar þess áttu erfitt með að höndla álagið.

Tölfræði er kannski eitthvað sem maður svona fyrst í stað myndi ekki telja líklegt til vinsælda á Netinu, en Swivel er heillandi á sinn hátt og ég stóð sjálfan mig að því að kanna hin margvíslegustu gögn og tengslin á milli þeirra bara vegna þess að það bæði skemmtilegt og fróðlegt. Ég tók t.a.m. eftir því að Hjálmar Gíslason, höfundur Spurlsins, hefur sett inn gögn sem varða fólksfjöldaþróun á íslandi á árunum 1890 – 1990.

Swivel hefur upp á að bjóða eftirfarandi þjónustu og það án endurgjalds:

  • Hægt er að skoða hvers kyns gögn sem notendur hafa sent inn. Gögnin má birta sem lista eða á myndrænu formi (gröf). Þau má einnig sækja yfir á eigin tölvu.
  • Hægt er að bera saman ólík eða lík gagnasett og setja samanburðinn fram á myndrænan hátt.
  • Hægt er að breyta birtingu gagna, s.s. framsetningarhætti eða fjölda.
  • Notendur geta birt einstök gröf á eigin vefjum (sjá sýnishorn hér að neðan) eða sent vísanir á þau í tölvupósti.
  • Notendur geta sent inn eigin gagnasett ásamt lýsingu og jafnvel táknrænni ljósmynd. Sjálfur prufaði ég að setja inn gögn sem tengjast skólastarfi og reyndist það lítið mál.

Swivel býður upp á óteljandi kosti í námi og kennslu og verður spennandi að nýta það í skólastarfi strax á næstu önn. Stærðfræði kemur fyrst í hugan en auðvitað er hægt að nýta svona þjónustu í fjölmörgun námsgreinum, s.s. sögu, félagsfræði og upplýsingatækni.

1015470

Ég á eftir að kynna mér kosti og galla Swivel miklu betur og hyggst gera það á næstunni. Ég sé mikla möguleika í vefþjónustu sem þessari en spyr mig einnig um áreiðanleika gagnanna sem þarna verða gerð aðgengileg. Þetta er að sjálfsögðu sama vandamálið og Wikipedia og önnur viðlíka samfélög á Netinu glíma við á hverjum degi. Frelsið er yndislegt en því fylgir gjarnan misnotkun.


Tengt efni

1 athugasemd við “Swivel – YouTube fyrir tölfræði”

  1. Björgvin skrifar:

    Vefsíðan þeirra svarar einmitt ekki núna þegar ég ætlaði að skoða þetta.

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni