Gapminder

Skrifað 13. December 2006
Ein athugasemd frá lesendum

Einu sinni á ári stendur TED stofnunin fyrir íburðamiklu málþingi þar sem þjóðþekktir einstaklingar og fræðimenn stíga á stokk og halda fyrirlestra um hin ýmsu málefni. Meðal þátttakenda á TED 2006 var sænski fræðimaðurinn Hans Rosling og má með sanni segja að framlag hans hafi vakið verðskuldaða athygli.

Í fyrirlestri sínum fjallaði Rosling um þær gríðarlegu breytingar sem heimurinn allur hefur undirgengist á undanförnum áratugum, hvorki meira né minna. Hann ræddi um gamlar og úreldar mýtur um muninn sem er á þróuðum ríkjum og þróunarlöndunum eins og þau gjarnan eru nefnd og sýndi skemmtilega fram á hvernig margar allt of algengar goðsagnir standast illa í samanburð við raunveruleikann.

Rosling byggir hugmyndir sínar og niðurstöður rannsókna á alþjóðlegum og aðgengilegum gögnum, t.d. tölum um fólksfjölda, dánartíðni, þjóðarframleiðslu og fæðingar. Svo fátt eitt sé nefnt. En það sem vekur alltaf athygli þegar Rosling miðlar af þekkingu sinni er á hversu myndrænan og auðskiljanlegan hátt hann setur fram tölfræðilegt efni. Ég horfði nýlega á upptöku af fyrirlestri Rosling á TED 2006, en hún er t.d. aðgengileg á Google Videos, og það var erfitt annað en að heillast. Þetta er fyrirlestur sem allir kennarar ættu að horfa á.

Í því skyni að auðga framsetningu a tölfræðilegu efnis styðst Rosling við margmiðlunarhugbúnað sem hann nefnir Gapminder og þróaður er af Gapminder stofnuninni sem Rosling stofnaði sjálfur ásamt syni sínum Ola Rosling og tengdadóttur, Anna Rosling Rönnlund. Það er erfitt að lýsa þessum hugbúnaði með orðum og sem betur fer þarf ég þess ekki. Ekkert er einfaldara en að sækja tilbúin gögn á Gapminder.org vefinn og skoða í þar til gerðum hugbúnaði. Ég veit ekki til þess að hægt sé að mata þennan hugbúnað á eigin gögnum en á Gapminder.org vefnum er hægt að sækja fjölbreyttar útgáfur af Gapminder sem hafa að geyma ólík gögn.

Rosling er sannfærður um mikilvægi þess að virkja betur opinbera (og auðvitað óopinbera) gagnagrunna í því skyni að skapa dýrmæta þekkingu. Ein stór hindrun í vegi slíkrar nýtingar er takmarkað aðgengi að mikilvægum gögnum. Það er því miður svo, að rannsóknarniðurstöður og tölfræðilegar upplýsingar sem komið geta vísindamönnum að notum eru oft ófáanlegar nema gegn gjaldi, oft mjög háu. Önnur hindrun felst í ósamstæði gagna hvað varðar form og hýsingu. Tölfræðileg gögn má hýsa á fjölbreytta máta í ólíkum kerfum sem byggja á ólíkri tækni eða ósamrýmanlegum stöðlum. Rosling er þó bjartsýnn að eðlisfari og segir þessar hindranir ekki óyfirstíganlegar.

Aðgengi að gögnum er eitt, miðlun þeirra annað. Allar þær ómetanlegu upplýsingar sem hægt er að vinna úr gríðarmiklum upplýsingasöfnum alþjóðasamfélagsins koma að takmörkuðum notum ef ekki er hægt að setja þær fram á auðskiljanlegan máta. Einmitt þess vegna er hugbúnaður eins og Gapminder svo mikilvægur. Og einmitt þess vegna er svo stórkostlegt að geta sótt slíkan hugbúnað án endurgjalds á Netið og nýtt í skólastofunni. Sjáið bara og sannfærist.


Tengt efni

1 athugasemd við “Gapminder”

  1. sfjalar - » Stórkostlegur fyrirlestur um sköpunarkraft og skólakerfi skrifar:

    [...] Ég hef áður skrifað um fyrirlestur á TED ráðstefnunni, nánar tiltekið fyrirlestur Hans Rosling um myndræna framsetningu tölfræðilegra gagna með aðstoð Gapminder. Frábær fyrirlestur sem [...]

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni