Close

Svona gerum við

Námsefni

UCLA velur Moodle

moodle_logo_smaller.gifUniversity of California, Los Angeles er án nokkurs vafa einn af virtustu háskólum Bandaríkjanna enda fær enginn bandarískur háskóli fleiri umsóknir um námsvist á hverju ári. Hún er því eftirtektarverð sú ákvörðun stjórnenda UCLA að velja Moodle sem netbundið námsumhverfi skólans.

Ákvörðun UCLA er áhugaverð einnig í ljósi þess að skólinn er þátttakandi í Sakai verkefninu sem felst í samvinnu nokkurra öflugra háskóla vestanhafs um þróun og smíði öflugs netbundins námsumhverfis. Þess má geta að Sakai er opinn hugbúnaður eins og Moodle. Þrátt fyrir innleiðingu Moodle mun UCLA eftir sem áður taka þátt í þróun Sakai sem virkur meðlimur í Sakai stofnuninni (Sakai foundation).

UCLA er áhrifamikil menntastofnun og almennt talinn einn af betri háskólum í heimi. Í rannsókn Shanghai Jiao Tong háskólans árið 2006 á gæðum háskóla varð UCLA í 14. sæti. Rannsókn Shanghai Jiao Tong er ein hin þekktasta sinnar tegundar og í kjölfar hennar er birtur listi yfir 500 bestu háskóla heims á hverju ári. Val UCLA á Moodle hlýtur því að teljast meiriháttar vegsauki fyrir Moodle námsumhverfið og opinn hugbúnað almennt.

En hvað með íslenska háskóla? Moodle er nú þegar nýtt við kennslu í Hólaskóla og Kennaraháskóla Íslands þó í takmörkuðu mæli sé á þeim bænum. Háskóli Íslands hefur og sett upp Moodle og hyggst bjóða áhugasömum kennurum að nýta það í kennslu. Sjálfur er ég spenntur fyrir þeim möguleika og sé því nákvæmlega ekkert því til fyrirstöðu að sameinaður háskóli HÍ og KHÍ fari að fordæmi UCLA og Opna háskólans í Bretlandi og taki upp Moodle sem aðalnámsumhverfi skólans á Netinu.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

  1. sfjalar - » Ár Moodle12-30-06