10 algeng mistök í vefhönnun

Skrifað 28. December 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

mouse.jpgJakob Nielsen er einn helsti sérfræðingur samtímans á sviði vefhönnunar og notagildisfræða vefsins. Á hverju ári tekur Nielsen saman lista yfir það sem hann kallar Top tíu mistök í vefhönnun og tekur þar m.a. mið af niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna sinna. Hér má sjá hvað helst angrar Nielsen á árinu 2006 þegar vefhönnun er annars vegar:

  1. Léleg leit
    Leitarvélar vefsvæða eru mikilvæg leið fyrir notendur að finna upplýsingar og stundum sú eina þegar erfitt er að rata um vefi. Sumar upplýsingar geta einnig verið niðurgrafnar þannig að þær eru nánast óaðgengilegar nema í gegnum leitarvél, s.s. skjöl eða gamlar fréttir. Léleg leitarvél takmarkar því notagildi og aðgengi vefs og hafa áhrif á stóran hóp notenda.
  2. PDF skrár til aflestrar á Netinu
    PDF skráarsniðið er stórsniðugt þegar ætlunin er að dreifa gögnum til útbrentunar eða fyrir stór skjöl. Það hentar hins vegar illa þegar efni er ætlað til aflestrar á Netinu.
  3. Óbreyttur litur á heimsóttum krækjum
    Það er mikilvægt fyrir notendur að eiga auðvelt með að greina hvaða síður hafa verið opnaðar og hvaða síður ekki. Rannsóknir sýna að notendur eiga erfiðara að fara um vefi og heimsækja sömu síðurnar aftur og aftur án þess að ætla sér það þegar litir á krækjum breytast ekki eftir að þær hafa verið heimsóttar.
  4. Texti sem ekki er hægt að skima
    Textagerð á vefnum lýtur öðrum lögmálum en texti sem ætlaður er til útprentunar. Netverjar skima gjarnan texta á vef og leita eftir aðalatriðunum. Texta á vef verður að vinna með það í huga.
  5. Fastar leturstærðir
    Notendur eiga ávallt að geta stækkað og minnkað letur á vefsíðum eins og hentar. Því er betra að skilgreina letur í hlutfallstærðum í stað þess að notast við fastar pixlastærðir.
  6. Síðutitlar sem leitarvélar eiga erfitt með að finna
    Netverjar nota leitarvélar til að finna upplýsingar og síður sem “fela” sig fyrir leitarvélum koma fáum að gagni. Markvissir og skýrir síðutitlar eru algjört lykilatriði í þessu sambandi.
  7. Allt sem lítur út fyrir að vera auglýsingarefni
    Netverjar læra fljótlega að greina á milli auglýsingarefnis og annars efnis á Netinu, t.a.m. með tilliti til staðsetningar og forms. Þess vegna er best að forðast að notast við hluti eða hönnun sem gæti litið út fyrir að vera auglýsing.
  8. Brot á hefðbundnum reglum vefhönnunar
    Í gegnum tíðina hafa myndast ákveðnar hefðir í vefhönnun. Eitt af lykilatriðum í viðmótshönnun þróun aðgengilegra vefja er að fylgja slíkum hefðbum. Vefir sem brjóta algengar hefðir gera notendum erfitt fyrir og það er aldrei vænlegt til árangurs.
  9. Nýir vefgluggar
    Ekki opna nýja vefgluggar í hvert sinn sem smellt er á krækju á vefnum. Kjósi notendur nýja glugga geta þeir opnað krækjur á þann hátt án þess að vefhönnuðurinn þurfið að koma þar að.
  10. Spurningum Netverja ekki svarað
    Netverjar heimsækja vefi vegna þess að þeir hafa eitthvað þangað að sækja. Ein stærstu mistök vefhönnuða eða vefstjóra felast í því að birta notendum ekki þær upplýsingar sem þeir sækjast eftir. Ágætt dæmi um þetta er þegar vefir birta ekki upplýsingar um verð vöru.

Í ár eru 10 ár síðan Jakob Nielsen byrjaði á þessum sið að taka saman lista yfir algeng mistök í vefhönnun. Listan í ár ásamt eldri listum má skoða í heild sinni á vef Nielsen Useit.com.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni