Ár Moodle
Það er skemmst frá því að segja að árið 2006 hefur reynst Moodle ákaflega gjöfult. Moodle hefur verið mikið í fjölmiðlum á árinu enda frá miklu að segja. Hér er stutt samantekt um það helsta sem vakti athygli mína á árinu:
Árið hófst á vel heppnuðu átaki fjölmargra sjálfboðaliða sem tóku sig saman og kynntu Moodle á hinni árlegu BETT ráðstefnu/sýningu í London. Það er ekki ókeypis að taka þátt í Bett og í því skyni að kynna framtakið og safna peningum fyrir þátttökugjaldinu var stofnsettur vefurinn Help Us Get To BETT. Það er óhætt að segja að framtakið hafi tekist vonum framar. Svo mikil var örtröðin við Moodle básinn að nágrannar okkar (man ekki í augnablikinu hvað það fyrirtæki hét) töldu það vænsta kostinn að færa sig um set. Hér má sjá nokkrar myndir sem ég tók á Bett 2006.
Moodle er í örri þróun og voru tvær nýjar útgáfur opinberaðar á árinu sem innihéldu báðar umfangsmiklar breytingar. Útgáfa 1.6 fól í sér yfirfærslu í UTF-8 stafasettið auk þess sem íslensk þýðing varð nú aðgengileg sem hluti af kerfinu. Stærsta breytingin í Moodle 1.7 felst í nýju hlutverka og heimildakerfi. Báðar innihalda útgáfurnar fjölda smærri nýjunga og lagfæringa hverskonar. Þess má geta að útgáfa 1.8 er væntanleg í upphafi næsta árs.
Þegar þetta er skrifað eru skráðar alls 19.476 Moodle innleiðingar í 169 löndum, hvorki meira né minna. Það er einna helst hægt að nota orðið sprenging yfir fjölgun á Moodle innleiðingum á árinu. Hér má sjá frekari tölfræðilegar upplýsingar sem varða innleiðingar og notkun á Moodle.
Niðurstöður árlegrar rannsóknar um opinn hugbúnað (OSS Watch Survey) sem kostuð er af breskum stjórnvöldum
leiddi í ljós að um 56% breskra skóla á framhalds- og háskólastigi nýta Moodle. Áhrifamesti breski Moodle notandinn er væntanlega Opni háskólinn sem á árinu tók í notkun OpenLearn vefinn þar sem námsefni skólans er gert aðgengilegt öllum sem áhuga hafa endurgjaldslaust. OpenLearn vefurinn nýtir að sjálfsögðu Moodle námsumhverfið.
Undir lok ársins bárust einnig þær fréttir að UCLA háskólinn í Bandaríkjunum, einn virtasti háskóli í heimi, hafi ákveðið að Moodle skyldi verða opinbert námsumhverfi skólans á Netinu. Athabasca háskólinn í Kanada innleiddi einnig Moodle á árinu, en Athabasca er opinn háskóli og þykir leiðandi á sviði fjarnáms.
Á Moodle.org vefnum eru í dag, 30. desember 2006, skráðar 25 íslenskar innleiðingar, en 5 aðilar kjósa nafnleynd. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en þeim muni fjölga á nýju ári, skólum hér á landi sem velja Moodle. Ég hef áður sagt það og endurtek nú, að mest spennandi þætti mér að sjá Háskóla Íslands og Kennaraháskólann sameinast um Moodle námsumhverfið með Uglu sem öflugt nemendabókhald, en báðir hafa skólarnir sett upp sjálfstæðar Moodle uppsetningar. Þetta er fullkomlega raunhæfur kostur og miklu mun skynsamari og framsýnni leið en að þróa Ugluna í átt að námsumhverfi með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. Við þurfum ekki á nýju vefbundnu námsumhverfi að halda og orku og fjármunum HÍ er betur varið í annað en að finna upp hjólið.
Ég get ekki lokið þessum pistli án þess að lýsa yfir vonbrigðum mínum með þá einhliða, illa rökstuddu og ófaglegu ákvörðun sem tekin var af Menntasviði Reykjavíkur þegar Blackboard námsumhverfið var valið til innleiðingar í grunnskólum borgarinnar. Ætli sé ekki óhætt að kalla það mestu vonbrigði ársins á innlendum vettvangi.