Google kynnir Sketchup 6
Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.
Ég hef notað Sketchup í kennslu minni bæði við Fellaskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti og ég fullyrði að þarna er á ferðinni magnaður hugbúnaður og einstaklega notendavænn. Helsti kosturinn við Sketchup er hversu einfalt er að nota forritið og það tekur ekki nema örfáar mínútur að kynna undirstöðuatriði þess fyrir nemendum. Áður en ég kynntist Sketchup trúði ég því að þrívíddarteikningar væru verulega flókið fyrirbæri en í dag nýti ég forritið m.a. með nemendum á starfsbraut FB, en það er sérdeild skólans. Sketchup er líka skemmtilegt og það er gaman að sjá hversu skapandi nemendur verða þegar þeir fá í hendurna svona öflugt verkfæri.

Sketchup 6 inniheldur margvíslegar nýjungar, smáar jafnt sem stórar. Þar má t.d. finna textaverkfæri til að setja texta við teikningar og teikningar má nú vista sem pdf skjöl. Ný tækjastika hefur bæst við notendaviðmótið (var áður einungis í pro útgáfunni) og inniheldur hún fleiri verkfæri og hentar ágætlega notendum sem eru lengra komnir. Photo Match verkfærið er svo spennandi kostur sem einfaldar notendum að búa til þrívíddarmódel eftir ljósmyndum.
Hér eru nokkrar krækjur fyrir þá sem vilja kynna sér Sketchup betur: