Microsoft Multipoint gæti komið að gagni í sérkennslu
Multipoint er ný tækni frá Microsoft sem opnar fyrir þann möguleika að tengja fleiri en eina mús við sömu tölvuna. Multipoint (hét áður MultiMouse) var þróað af starfsmönnum við rannsóknarsetur Microsoft á Indlandi og er hugsað til að brúa hina stafrænu gjá með því að auka aðgengi að tölvum þar sem fáar eru til staðar.
Ég er spenntur fyrir þessum möguleika vegna þess að ég held að lausnin gæti komið að góðum notum í sérkennslu fatlaðra nemenda eða nemenda sem þurfa mikla aðstoð í námi. Hugsanlega væri þetta sniðugt lausn á yngri skólastigum og í leikskóla.
Hvað sérkennsluna varðar þá sé ég fyrir mér að kennari gæti setið við tölvu ásamt nemanda með sína mús hvor. Multipoint virkar á þann hátt að hver músarbendill fær sinn einkennislit og því einfalt fyrir notendur að vita hver á hvaða bendil á skjánum. Athugið að Multipoint takmarkast ekki við tvær mýs í hverri tölvu, þær geta verið miklu fleiri. Ég geri einnig ráð fyrir því að hægt sé að breyta einstaka bendlum og músarbendill kennarans gæti því hæglega litið öðruvísi út en bendill nemandans.
Möguleikarnir sem þessi tækni hafa í för með sér eru fjölmargir og spennandi. Ímyndið ykkur að geta leiðbeint nemanda í tölvustuddri vinnu, t.a.m. með því að láta hann elta músina ykkar á skjánum. Þið gætuð sýnt nemendum ákveðnar aðgerðir með ykkar mús og látið þá svo framkvæma þær sjálfir. Svo ég nefni bara eitthvað sem kemur upp í hugann núna.
Multipoint er enn í mikilli þróun og Microsoft hefur ekki gefið upp nákvæma útgáfudagsetningu svo ég viti. Frekari upplýsingar um Multipoint má lesa í þessari fréttatilkynningu frá Microsoft. Sjálfur ætla ég að fylgjast náið með þessari lausn og bíð spenntur eftir að fá að reyna hana í kennslu.


