Breskum skólum ráðlagt að uppfæra ekki í Vista á næstunni

Skrifað 17. January 2007
Flokkur: Office
Engar athugasemdir frá lesendum

Becta logoBECTA stofnunin breska hefur sent frá sér bráðabirgðaniðurstöður nýrrar rannsóknar þar sem skólum þar í landi er sterklega ráðlagt frá því að uppfæra í Microsoft Vista stýrikerfið eða Office 2007 á næstunni.

Helstu niðurstöður skýrslunnar benda til þess að þrátt fyrir fjölda nýjunga og endurbóta í Vista stýrikerfinu samanborið við Windows XP þá inniheldur Vista engar þær endurbætur eða nýjungar sem réttlæta innleiðingu á þessari stundu. Kostnaður við endurnýjun á vélbúnaði yrði einnig umtalsverður þar sem kerfið gerir mun meiri kröfur til vélbúnaðar en XP (hvort sem Aero viðmótið er nýtt eða ekki). Með það í huga að öruggasta útgáfa Windows XP kom út þremur árum eftir markaðssetningu þess (þ.e. með tilkomu service pack 2) þykir einnig augljóst að innleiðing á nýju stýrikerfi feli í sér áhættu sem ekki sé skynsamlegt að taka.

Hvað Office 2007 varðar þá er það mat skýrsluhöfunda að engar af þeim 176 nýjungum sem finna má í
kerfinu geti talist það mikilvægar fyrir notendur að það réttlæti
uppfærslu. Nýtt notendaviðmót, hvort sem það er til bóta eða ekki, komi einnig til með að vefjast fyrir notendum og því skynsamlegt að bíða þangað til kerfið er komið í meiri notkun á almennum markaði.

Rétt er að taka það fram að skýrsluhöfundar telja nokkuð ljóst að meginþorri skóla muni í náinni framtíð uppfæra í Vista og Office 2007, sá tími er hins vegar ekki kominn. Þá kemur það einnig fram í skýrslunni að allt að 27% af nýjungum Vista stýrikerfisins er hægt að nálgast án þess að uppfæra núverandi stýrikerfi og þar átt við hluti eins og IE7 vafrann og nýja útgáfu af Windows Media Player.

Það væri fróðlegt að vita hvað íslenskir skólar hafa hugsað sér í þessum málum. Það þykir ágæt regla að hinkra með viðamiklar uppfærslur, ef mögulegt er, þangað til reynsla er komin á viðkomandi kerfi og vonandi búið að slípa af því helstu vankanta. Höfum í huga að stýrikerfi er einn flóknasti hugbúnaður sem hægt er að smíða og ef eitthvað er öruggt þá munu reynslan örugglega leiða í ljós margvíslegar villur bæði stórar og smáar. Ég get því alveg heimfært niðurstöður Becta skýrslunnar yfir á íslenska skóla og ráðlagt þeim að bíða með að uppfæra í Microsoft Vista og Office 2007.

Að sjálfsögðu ætla ég einnig nota þetta tækifæri og benda skólum á að kanna aðra valkosti og á ég þar að sjálfsögðu við Linux stýrikerfið og Open Office eða aðrar sambærilegar lausnir. Kannski er þetta einmitt tíminn til þess að skipta um gír og velja opnar lausnir.

Skýrsluna má sækja í heild sinni á pdf sniði á vef Becta.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni