Nokkur orð um möguleika netbundins hugbúnaðar í námi og kennslu
Windows stýrikerfið og Office safnið eru án efa mikilvægustu hugbúnaðarlausnir Microsoft og vandfundinn sá tölvunotandi sem hefur ekki í það minnsta einhverja reynslu af notkun hvoru tveggja. Nú hafa nýjar útgáfur af Windows og Office litið dagsins ljós og þrátt fyrir ólíkar skoðanir netverja á ágæti þeirra má telja nokkuð öruggt að þær verði ráðandi í skólakerfinu hér á landi sem og annars staðar í náinni framtíð. Markaðshlutdeild Microsoft á þessum vettvangi er slík að nemendum er ekki kennd almenn ritvinnsla eða notkun töflureiknis heldur fyrst og fremst Word og Excel. Vefefni Námsgagnastofnunar fyrir upplýsingatækni í 5. – 7. bekk inniheldur kennsluefni með 6 hugbúnaðarlausnum, öllum frá Microsoft!
Þau rök sem alla jafnan eru færð fyrir ástæðum þess að kenna nemendum á Word, Excel og Powerpoint umfram annan sambærilegan hugbúnað hljóma oftast þannig að Microsoft lausnirnar séu ráðandi á þessu sviði og því eðlilegt og sjálfsagt að nýta þær í kennslu. Það má vissulega til sanns vegar færa. Á hinn bóginn er einnig mikilvægt að fylgjast með örri þróun á þessum vettvangi því undanfarið hafa litið dagsins ljós framsæknar lausnir þar sem einfaldleikinn og notandinn er í fyrirrúmi, lausnir sem ögra ægivaldi Microsoft enda í harðri samkeppni við tæknirisann. Hér á ég netbundinn hugbúnað eins og Google Docs (sjá myndina hér fyrir neðan), Thinkfree (sögusagnir herma að Google ágirnis þá) og Zoho svítuna. Svo einungis örfá dæmi séu tekin.

Netið hefur gjörbylt hugmyndum fólks um hugbúnað og sífellt traustari og hraðari nettengingar hafa opnað áður óþekkta möguleika á því að þróa hugbúnað sem liggur á Netinu og því aðgengilegur hvar og hvenær sem er, þ.e. svo lengi sem aðgengi að Netinu er tryggt. Þróun netbundins hugbúnaðar hefur verið ör síðustu ár og nú er svo komið að finna má allar helstu gerðir notendahugbúnaðar á Netinu, s.s. ritvinnslu, töflureikna, teikniforrit hverskonar, framsetningarforrit og vefsmiði. Gæði þessa hugbúnaðar hefur aukist að sama skapi og þrátt fyrir að hann innihaldi ekki nema brot af möguleikum t.d. sambærilegra Microsoft lausna, þá dugar hann fullvel til allra almennra nota. Hinu má heldur ekki gleyma að netbundinn hugbúnaður býður upp á ýmsa kosti umfram hefðbundinn, s.s. til samvinnu. Netbundinn hugbúnaður er að öllum líkindum sá afkimi hugbúnaðarþróunar sem stjórnendur Microsoft þurfa að fylgjast hvað best með ætli þeir sér að halda forystuhlutverki sínu. Í dag eru það hins vegar fyrirtæki eins og Google sem leiða þessa þróun.
Hvers vegna ættu skólar að kynna sér netbundinn hugbúnað?
Netbundinn hugbúnaður er áhugaverð lausn á öllum skólastigum fyrir margra hluta sakir. Hann er ekki bundinn við ákveðnar tölvur og almennt mun ódýrari en almennur notendahugbúnaður. Reyndar er hægt að nýta stóran hluta netbundins hugbúnaðar endurgjaldslaust í dag. Aukið aðgengi nemenda að þeim hugbúnaði sem kenndur er í skólum minnkar líkurnar á því að til verði illbrúanleg stafræn gjá (líklegast er hún til nú þegar) milli þeirra sem eiga og eiga ekki kost á því að kaupa dýrkeyptar hugbúnaðarlausnir. Netbundinn hugbúnaður hentar einnig vel í akademísku umhverfi vegna sérstöðu sinnar þegar kemur að samvinnu. Það er afar einfalt fyrir nemendur og auðvitað kennara líka að vinna saman að einstaka skjölum og samvinna eða hópavinna er eitthvað sem tíðkast gjarnan í skólastarfi. Ég efast til að mynda ekki um nytsemi netbundinnar ritvinnslu fyrir nemendur á bæði framhalds- og háskólastigi sem vinna saman að verkefni, t.a.m. ritgerðarsmíð. Fyrir yngri nemendur þá er notendaviðmót t.d. Google Docs miklu einfaldara og aðgengilegra en Microsoft Word og Excel. Það mætti vel hugsa sér að byrja kennslu í ritvinnslu og töflureikni með slíkum verkfærum þar sem aðgengi þeirra og einfaldleiki er helsti kosturinn. Þannig mætti líka virkja heimilin þar sem foreldrar og forráðamenn barnanna hafa sama aðgang að verkefnavinnu og námsumhverfi barnsins og kennarinn.
Það er vonandi að stefnumótandi aðilar, skólafólk og ekki síst sérfræðingar Námsgagnastofnunar kynni sér fyrir alvöru þá þróun sem er að eiga sér stað í dag á sviði netbundins hugbúnaðar. Staðreyndin er nefnilega sú að ef þessir aðilar einblína um of á Microsoft Office þá verða nemendur og kennarar af einstöku tækifæri til að taka þátt í spennandi þróunarstarfi sem á eftir að koma öllum til góða.


