Blackboard einkaleyfið verður endurskoðað
Þær fréttir berast nú frá vesturheimi að illræmt einkaleyfi Blackboard fyrirtækisins á grunnþáttum netbundinna námsumhverfa verði endurskoðað af einkaleyfisstofu þeirra Bandaríkjamanna. Ósk um endurskoðun var komið á framfæri nýlega af Software Freedom Law Center fyrir hönd Sakai stofunarinnar, Moodle samfélagsins og ATutor samfélagsins.
Ég hef fjallað um þetta efni áður og er sammála þeim fjölmörgu aðilum sem telja veitingu einkaleyfisins sorgleg mistök. Sem betur fer er ennþá nægur tími til að bæta úr því sem miður hefur farið og vonandi leiðir væntanleg endurskoðun leyfisins til niðurfellingu þess.
Þess má geta að Blackboard námsumhverfið hefur verið nýtt hér á landi í verkefninu Tölvutök. Ég hef verið að heyra misjafnar fréttir af gangi þess og það væri mjög fróðlegt að fá að heyra um hvernig þau mál standa. Það væri einnig fróðlegt að heyra frá Menntasviði RVK um framtíðaráætlanir þeirra hvað varðar innleiðingu Blackboard í grunnskóla borgarinnar.


