Þeirra staður - þeirra stund
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar og mjög áhugaverðrar rannsóknar Demos hafa breskir unglingar tekið upplýsingatækninni fagnandi og fullkomlega samþætt hana daglegu lífi. Meirihluti breskra ungmenna nýtir tæknina til að viðhalda félagslegum tengslum frekar en mynda ný, sækja og senda myndir á Netið og í sumum tilfellum til að smíða eigin vefsíður og jafnvel heilu vefina. Kennurum hefur á heildina litið mistekist að nýta sömu tækni í skólastarfinu og þeir sem halda um stjórnartaumana sjá heiminn í allt öðru ljósi en nútíma nemendur sem þekkja ekki heim án nets og farsíma.
Skýrsluhöfundar Demos eru alls ekki fyrstir til að koma auga á og lýsa hinni stafrænu kynslóð nemenda, þ.e. einstaklingum sem fæddir eru um og eftir 9. áratug síðustu aldar og eiga það sameiginlegt að hafa alist upp í umhverfi þar sem upplýsingatæknin er sjálfsagður hlutur. Í grein sem fræðimaðurinn Marc Prensky, höfundur bókarinnar “Digital Game-Based Learning”, skrifaði árið 2001 notaði hann hugtakið “digital native” eða stafræna frumbyggja yfir slíka einstaklinga en aðra telur hann stafræna nýbúa. Og líkt og skýrsluhöfundar Demos þá kemur hann einnig auga á stóra gjá á milli þeirra sem hafa alist upp við tæknina og þá sem hafa upplifað innreið hennar í nánast öll skúmaskot daglegrar tilveru. En það er einmitt síðarnefndi hópurinn sem varðar veginn hvað viðkemur hagnýtingu upplýsingatækninnar í námi og kennslu.
Mistök skólakerfisins og forvígismanna þeirrar stefnu sem nú er ríkjandi eru augljós og afdrifarík að mati skýrsluhöfunda. Í stað þess að virkja tæknina sem ungt fólk hefur þú þegar fullkomlega samþætt eigin lífstíl hafa yfirvöld ákveðið að spyrna við fótunum og hamla gegn notkun hennar allst staðar þar sem því verður við komið. Þetta er fyrst og fremst gert á þeim forsendum að einungis með boðum og bönnum sé hægt að vernda nemendur gegn öllum þeim hættum sem fyrirfinnast á Netinu.
Rannsókn Demos var mjög viðamikil og ég hvet alla sem áhuga hafa á upplýsingatækni, samfélagi og skólastarfi að kynna sér niðurstöður hennar. Skýrslu með niðurstöðum má sækja á pdf sniði án endurgjalds á vef Demos, en hún er gefin út samkvæmt Creative Commons leyfisskilmálunum.


