2. tölublað elearningpapers vefritsins er komið út og inniheldur fimm áhugaverðar greinar. Frekari upplýsingar um útgáfuna eru hér.
Tryggvi Thayer skrifar áhugaverðan pistil um upplýsingatækni í skólastarfi á blogginu sínu Upplýsandi tækni.
BETT verðlaunin 2007 voru afhent þann 10. janúar s.l. Hér er listi yfir verðlaunahafa.
Idahoe State University nýtir WebCT 4.0 námsumhverfið, en þar sem stuðningur Blackboard/WebCT við þá útgáfu rennur út í júlí 2008 eru skólastjórnendur farnir að huga að uppfærslu. Í þessari stöðu væri sjálfsagt að uppfæra í útgáfu 6.0 af WebCT en sökum umfangs slíkrar uppfærslu hefur verið ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni, þ.e. önnur ...
Multipoint er ný tækni frá Microsoft sem opnar fyrir þann möguleika að tengja fleiri en eina mús við sömu tölvuna. Multipoint (hét áður MultiMouse) var þróað af starfsmönnum við rannsóknarsetur Microsoft á Indlandi og er hugsað til að brúa hina stafrænu gjá með því að auka aðgengi að tölvum þar sem fáar eru til staðar.
Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.
Hugtakið “Featuritis” lýsir þeirri tilhneygingu við þróun hugbúnaðar að leggja aðaláherslu á nýja möguleika (features) með hverri nýrri útgáfu. Hversu mikilvægir sem nýir möguleikar eru þá er innleiðing þeirra ósjaldan á kostnað aðgengis og einfaldleika. Nýjar aðgerðir kalla á aukið flækjustig og aukið flækjustig kallar á meiri þjálfun og aðstoð. Allt leiðir þetta af sér ...
Íslenskun á ELGG hugbúnaðinum gengur vel og vænta má að henni ljúki innan skamms. Alls hafa 838 textastrengir af 1009 verið þýddir, en það eru um 83% heildartextans. Þýðingin fer fram á opnu þýðingarkerfi á Netinu og geta því allir sem áhuga hafa lagt sitt af mörkum til þýðingarinnar.
Athugasemdir