Blackboard heitir því beita sér ekki gegn opnum hugbúnaði og heimasmíðuðum
Blackboard sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem því er heitið að beita aldrei umdeildu einkaleyfi fyrirtækisins (og öðrum sem enn bíða afgreiðslu) á grunnþáttum námsstjórnunarkerfa (course management systems) gegn opnum hugbúnaði eða heimasmíðuðum lausnum á sviði netbundinna námsumhverfa svo lengi sem viðkomandi kerfi eru ekki hluti af séreignahugbúnaði.
Yfirlýsing Blackboard kemur í kjölfar samþykkis einkaleyfisstofunar bandarísku á ósk Software Freedom Law Center um endurskoðun á fyrrgreindu einkaleyfi, ósk sem SFLC kom á framfæri að beiðni þriggja aðila sem standa á bak við nokkur sterkustu opnu námsumhverfin á Netinu, þ.e. Sakai stofnunarinnar, Moodle samfélagsins og ATutor samfélagsins. Þess má geta að forvígismenn Blackboard hafa frá upphafi haldið því fram að fyrirtækið muni ekki beita sér gegn opnum hugbúnaði og er því eðilegt að lesa tilkynninguna í dag sem bindandi staðfestingu á því.
Ástæður þess að Blackboard kýs að birta þessa yfirlýsingu í dag eru að öllum líkindum markaðslegar í eðli sínu og ætlað að fegra aðeins skaddaða ímynd fyrirtækisins. Yfirlýsingin hefur engin áhrif á málatilbúnað Blackboard gegn helsta samkeppnisaðila sínum Desire2Learn og tímasetningin er örugglega engin tilviljun. Það er að sjálfsögðu óskandi að stjórnendur Blackboard sjái að sér og láti af augljósri misnotkun sinni á úreldu einkaleyfakerfi . Því miður bendir ekkert til að svo muni verða í náinni framtíð.
Sakai stofunin og Educause hafa þegar sent frá sér sameiginlega tilkynningu vegna yfirlýsingar Blackboard.


