Macaulay safnið hefur nú gert stóran hluta safnkostsins aðgengilegan á Netinu, eða yfir 65.000 hljóðupptökur og 18.000 myndskeið.

Til þess að hlusta á upptökurnar þarf Realplayer spilarinn að vera uppsettur og er það miður að ekki skuli vera notast við algengara skráarsnið. Fjölmörg dýrahljóð eru einnig aðgengileg á myndrænu sniði og þarf að sækja sérstakan spilara, RavenViewer til að spila þær skrár. RavenViewer byggir á Quicktime og er sóttur án endurgjalds á vef Macaulay safnsins.

Því miður virðist notendum ekki boðið upp á þann kost að vista hljóðskrár yfir á eigin tölvu, en hægt er að kaupa einstaka hljóð eða geisladiska með hljóðskrám.


