1984 - stóri bróðir hefur gætur á gögnunum þínum

Skrifað 17. February 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

1984.gif1984 ehf er mjög áhugavert, íslenskt fyrirtæki sem býður einstaklingum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum vistun, ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatæknimála. Nafnið er að sjálfsögðu vísun í skáldsögu Orwells enda einkunnarorð fyrirtækisins “Stóri bróðir hefur gætur á gögnunum þínum”.

1984 er svo sem ekki eina fyrirtækið á þessum markaði en sérstaða þess er nokkur þar sem þeir félagar Sigurður og Mörður sem að því standa sérhæfa sig í frjálsum hugbúnaði. Á vefnum þeirra má lesa eftirfarandi um ástæður þess að nota frjálsan/opinn hugbúnað:

  • Spara leyfisgjöld vegna séreignarhugbúnaðar. Stærstur hluti frjáls hugbúnaðar er jafnframt ókeypis hvað varðar leyfisgjöld
  • Bæta öryggi í meðferð upplýsinga. Þegar fyrirtæki eða stofnun setur upp einkaeignarhugbúnað þar sem lokað er fyrir aðgengi að grunnkóða hefur viðkomandi aðeins orð seljanda hugbúnaðarins fyrir því að ekki sé um að ræða hugbúnað með ótal öryggisgloppum, bakdyrum og njósnavirkni. Þegar öryggi upplýsinga fyrirtækis er annars vegar er óviðeigandi að sýna slíkt traust.
  • Leysa í eitt skipti fyrir öll vandamál sem tengjast vírussýkingum og njósnahugbúnaði sem eru alvarleg og kostnaðarsöm vandamál þar sem notast er við séreignarhugbúnað. Stýrikerfi sem eru frjáls hugbúnaður eru nær alveg laus við slík vandamál.
  • Geta lagað hugbúnaðinn að þörfum hvers og eins. Frjáls hugbúnaður byggir á aðgengi að grunnkóða og gagnsæi við
    meðferð á upplýsingum.

Ég hvet alla sem eru að leita sér að vefhýsingu eða þjónustu á því sviði sem 1984 ehf hefur í boði að kynna sér starfsemi þeirra og verð.


Tengt efni

  • No Related Post

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni