Drög að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað

Skrifað 23. February 2007
Ein athugasemd frá lesendum

Drög að tillögu að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað hafa nú verið gerðar aðgengilegar á UT vefnum. Tillögurnar byggja á skýrslu um opinn hugbúnað sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið og kom út í apríl 2005. Stefnan nær til allra ríkisstofnana og félaga sem rekin eru fyrir opinbert fé.

Stefna stjórnvalda um opinn hugbúnað

  1. Gæta skal þess að gefa opnum hugbúnaði sömu tækifæri og séreignarhugbúnaði þegar tekin er ákvörðun um kaup á nýjum búnaði og ávallt skal leitast við að gera sem hagstæðust innkaup.
  2. Leitast verði við að velja hugbúnað sem byggir á opnum stöðlum, hvort sem um staðlaðan búnað er að ræða eða sérsmíðaðan. Opinn hugbúnaður byggir oftast á opnum stöðlum.
  3. Stefnt verði að því að opinberir aðilar verði ekki of háðir einstökum hugbúnaðarframleiðendum og þjónustuaðilum. Notkun opins hugbúnaðar er liður í því.
  4. Stefnt skal að því að hugbúnaður sem smíðaður er og fjármagnaður af opinberum aðilum, m.a. í rannsóknar- og þróunarverkefnum, verði endurnýtanlegur. Liður í því er að hugbúnaðurinn sé opinn. Í upphafi slíkra verkefna skal gera áætlun um endurnýtingu hugbúnaðarins.
  5. Stuðlað verði að því að nemendur í menntastofnunum landsins fái tækifæri til að kynnast og nota opinn hugbúnað til jafns við séreignar-hugbúnað.
  6. Hér eru drögin í heild sinni á pdf sniði.

    Athugasemdir má senda fyrir 15. mars til skrifstofu upplýsingasamfélagsins, forsætisráðuneyti (salina.helgadottir@for.stjr.is)


Tengt efni

  • No Related Post

1 athugasemd við “Drög að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað”

  1. sfjalar - » “Revolution OS” skrifar:

    [...] sínum hugmyndafræðina sem frjáls- og opinn hugbúnaður grundvallast á. Samkvæmt nýútgefnum drögum stjórnvalda að stefnu um opinn hugbúnað á að stuðla að því að nememendur í menntastofnunum landsins fái tækifæri til að kynnast [...]

Skráðu athugasemd

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Skjámynd úr Auditorium leiknum

    • Sýnishorn af Devolve vefnum

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni