Á haustönn 2003 fékk Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti styrk frá Menntamálaráðuneytinu til þess að þróa áhugasviðs- og færnikönnun fyrir nemendur með sérþarfir. Niðurstöðum könnunarinnar er ætlað að gefa vísbendingu um hvort að nemandinn hafi áhuga eða getu til að vinna tiltekin störf eða á tilteknum starfssviðum. Auk þess mætti styðjast við niðurstöður könnunarinnar við gerð einstaklingsmiðaðra kennsluáætlana til að búa nemandann enn frekar undir væntanlegt starfsnám og síðar meir starfsvettvang.
Könnunin var hönnuð af tveimur kennurum Starfsbrautar þeim Hrafnhildi Gísladóttur og Valdísi Harrysdóttur. Hægt er að sækja könnunina á vef starfsbrautar á Excel sniði.


