Netbundin hugarkort með Mindmeister

Skrifað 03. March 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

mindmeister_logo.gif

Mindmeister er enn ein birtingarmynd netbundins hugbúnaðar sem undanfarið hefur vaxið mjög ásmegin. Í þetta skiptið er viðfangsefnið hugarkort en Mindmeister svipar mjög í útliti og virkni til hins vinsæla hugbúnaðar Mindmanager, nema hvað hann er aðgengilegur á Netinu og ekki seldur sem sjálfstæður hugbúnaður.

Mindmeister inniheldur enn sem komið er ekki nema brot af þeim kostum sem Mindmanager, Inspiration eða sambærilegur hugbúnaður býr yfir. Þetta er algengt þegar netbundinn hugbúnaður á í hlut en þá er gott að hafa hafa í huga að Mindmanager á það sameiginlegt með Microsoft Office og mörgum öðrum vinsælum og langlífum hugbúnaði að einungis brot af kostum hans eru nýttir af hinum almenna notanda. Hugarkort eru einföld hugmynd og það þarf alls ekki viðamikinn hugbúnað til að vinna með þau. Stundum er minna meira eins og ég hef áður sagt.

Mindmeister, líkt og annar hugbúnaður á Netinu, inniheldur alla helstu aðgerðir sambærilegra forrita en nýtir sér auk þess þá möguleika og sérstöðu sem Netið skapar. Og sú sérstaða gefur hugbúnaði eins og Mindmeister mikla möguleika:

  • Notendur geta unnið í hugbúnaðinum hvar og hvenær sem er, svo lengi sem nettenging er til staðar
  • Notendur geta geymt hugarkortin miðlægt á Netinu
  • Fleiri en einn aðili getur unnið í sama hugarkortinu á sama tíma óháð staðsetningu
  • Hægt er að birta hugarkort á hvaða vefsíðu sem er, t.a.m. á bloggi eða kennsluvef

Hugarkort eru eins og sniðin að Netinu og það verður að segjast eins og er að það kemur á óvart að framleiðendur Mindmanager eða Inspiration, leiðandi hugbúnaðar á þessum vettvangi, skuli ekki vera sjá sig færa að bjóða upp á netútgáfur af hugbúnaði sínum. Vafalítið eru þessi fyrirtæki að vakna upp við vondan draum um þessar mundir og hugsanlega er nú þegar verið að vinna hörðum höndum að netútgáfum innan veggja þeirra. Hver veit?

Mindmeister er enn í betaútgáfu og getur hver sem áhuga hefur sótt um aðgang. Mindmeister er til í ókeypis útgáfu en notendum stendur einnig til boða að kaupa aðgang að þjónustunni í formi áskrifta sem m.a. felur í sér stærra geymslupláss og fleiri kort (ókeypis aðgangurinn heimilar 4 hugarkort á notanda). Sífellt algengara er að fyrirtæki bjóði notendum upp á áskriftaraðgang að hugbúnaði.

Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með framsókn netbundins hugbúnaðar á næstu mánuðum og árum. Skemmst er þess að minnast að Google hefur opnað fyrir áskrift að þjónustum sínum á Netinu og nýlega lýsti Adobe því yfir að innan sex mánaða gætu netverjar unnið í einfaldaðri, ókeypis útgáfu af Photoshop á Netinu.

Að lokum má geta þess að Mindmeister er ekki eitt um hituna þegar kemur að netbundnum hugarkortum því í það minnsta tvö önnur fyrirtæki hafa svipaða þjónustu í boði, þ.e. Bubbl.us og Mindomo. Ég mun fjalla betur um þær lausnir síðar. Í millitíðinni bendi ég öllum sem vilja kynna sér hugarkort betur á vef Hróbjartar Árnasonar.


Tengt efni

Skráðu athugasemd