Ég er frekar hrifinn af þeim möguleikum sem netbundnar efnismiðlanir eins og Slideshare og Scribd hafa upp á að bjóða. Það er óneitanlega freistandi að hýsa efni endurgjaldslaust og ekki er verra að geta birt efni án fyrirhafnar á hvaða vef sem er eins og einfalt er að gera með Scribd. Notendur Scribd hafa einnig kost á því að sækja efni vefsins á Word, PDF eða hreinu textasniði. Auk þess get Ég er einnig spenntur fyrir félagslegu víddinni, þ.e. að hafa aðgang að efni frá öðrum notendum og geta birt athugasemdir við efni þeirra þegar ég slíkt það við hæfi. Slideshare, Scribd og aðrar álíka þjónustur koma sér því vel fyrir mig sem kennara.
Það sem veldur mér helst áhyggjum hvað svona þjónustur varðar er að ég er ekki fullkomlega viss um að geta treyst þeim fyrir mikilvægu efni, eins og t.a.m. kennslugögnum. Tökum Scribd sem dæmi. Hvaða viðskiptahugmynd liggur svona vef til grundvallar? Ég kem ekki auga á neinar auglýsingar sem hugsanlega gætu aflað vefnum tekna. Maður hlítur því að spyrja sig hversu lengi lítil, kannski nýstofnuð fyrirtæki geta haldið úti ókeypis þjónustu sem grundvallast á mikilli bandvídd og miklu geymslumagni? Allt kostar þetta jú peninga. Get ég sem notandi átt von á því að einn góðanveðurdag þá vakni ég upp við að þjónustunni hefur verið lokað og allt mitt efni óaðgengilegt, glatað? Ég hef líka nokkrar áhyggjur af höfundarréttarmálum á Scribd. Svona við fyrstu sýn virðist ansi mikið af efni vefsins sent inn í óþökk höfundarrétthafa, s.s. heilu bækurnar um vefsmíðar, forritun eða myndvinnslu.
Annars verður bara að koma í ljós hvernig Scribd mun standa sig og þróast. Ég er spenntur fyrir þessari hugmynd og mun örugglega nýta mér Scribd í náinni framtíð. Vonandi erum við að sjá þarna vísi að öflugri þjónustu á Netinu. Það er aldrei að vita.


