Google uppfærir Picasa vefalbúmin

Skrifað 08. March 2007
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

picasaweblogo.gifGoogle hefur uppfært Picasa vefalbúmin sín en meðal helstu nýjunga er aukið ókeypis geymslupláss úr 250MB í 1GB auk þess sem nú er mun einfaldara að vísa í einstaka myndir er albúm eða jafnvel birta vísun í þau í heild sinni á öðrum vefjum.

Sjálfur nýti ég Picasa Web Albums afar lítið og satt best að segja hef ég fyrst og fremst notað Google aðgang minn til þess að prufa kerfið. Ég efast um að þessi uppfærsla komi til með að skipta mig miklu og býst við að halda mig við Flickr, en það á svo sem eftir að koma í ljós. Hér má finna yfirlit yfir allar nýjungarnar sem uppfærslan hefur í för með sér.

Ég er einna spenntastur fyrir auknum leitarmöguleikum Picasa vefalbúmanna eftir þessa uppfærslu og einnig þeim eiginleika að geta varpað myndum úr Picasa albúmi yfir í bloggið mitt eða á aðra vefi á einfaldan hátt.

Athugið að hver sem er getur stofnað eigið vefalbúm með því einu að búa sér til innskráningarreikning hjá Google. Þar með er viðkomandi einnig kominn með aðgang að öðrum þjónustum Google, s.s. Gmail og Google Docs.


Tengt efni

Skráðu athugasemd