Myndin er kjörin leið til þess að öðlast innsýn í sögu, stöðu og þróun opins og frjáls hugbúnaðar og á erindi við alla sem vilja kynna sér þetta heillandi viðfangsefni betur.
Ég hvet einnig kennara, t.a.m í upplýsingatækni, að nýta þessa mynd til þess að kynna fyrir nemendum sínum hugmyndafræðina sem frjáls- og opinn hugbúnaður grundvallast á. Samkvæmt nýútgefnum drögum stjórnvalda að stefnu um opinn hugbúnað á að stuðla að því að nememendur í menntastofnunum landsins fái tækifæri til að kynnast og nota opinn hugbúnað til jafns við séreignarhugbúnað. Hér gefst ágætt tækifæri til þess að stíga fyrsta skrefið í þá átt.
Opinber vefur myndarinnar er hér.


