Close

Svona gerum við

Námsefni

Um áhrif opins hugbúnaðar á menntun

opensourcelogo.gifÞann 12. mars nk. hefst spennandi dagskrá á Netinu þar sem alþjóðlegur hópur virtra fagaðila á sviði opins hugbúnaðar í námi og kennslu kemur saman og fjallar um viðfangsefnið hver frá sínu sjónarhorni. Umfjöllunin er í formi greinaskrifa eða viðtala og verður viðkomandi höfundur til umræðu um framlag sitt á þeim tíma sem viðfangsefni hans er til umfjöllunar.

Greinarnar verða fyrst birtar á vef PennState háskólans en síðar færðar yfir á WikiEducator vefinn þar sem þær verða öllum opnar.

Viðburðurinn stendur til 27. júní nk. og eftirfarandi aðilar hafa boðað þátttöku sína. Athugið að vel má vera að fleiri bætist við þar sem enn er leitað eftir áhugasömu fagfólki:

  • Ruth Sabean
  • Pat Masson
  • Richard Wyles
  • Michael Feldstein
  • Wayne Mackintosh
  • Jim Farmer
  • Mike Halm
  • Al Essa
  • Kim Tucker

  • Dagskráin hefst, eins og áður hefur verið sagt þann 12. mars, þegar birt verður viðtal við Ruth M. Sabean frá UCLA þar sem hún var m.a. ábyrg fyrir matsferlinu sem leiddi til þess að skólinn valdi að innleiða Moodle námsumhverfið. Dagskráin er enn ekki fullmótuð en hana má finna á vef verkefnisins. Í kjölfar Sabean kemur Richard Wiles og fjallar um nýjan eiginleika Moodle sem felst í því að frá og með útgáfu 1.8 (næstu útgáfu) verður hægt að tengja saman margar Moodle uppsetningar í eitt sveigjanlegt námsnet. Wiles mun einnig fjalla um Mahara eportfolio og tengt efni.



    Tengt efni

    Skráðu athugasemd