Stórkostlegur fyrirlestur um sköpunarkraft og skólakerfi

Skrifað 15. March 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Ken Robinson er leiðandi fræðimaður á sviði skapandi hugsunar og höfundur bókarinnar Out of Our Minds. Í febrúarmánuði síðasta árs hélt hann fyrirlestur á hinni árlegu TED ráðstefnu þar sem viðfangsefnið var mikilvægi skapandi hugsunar í nútíma skólastarfi. Þetta er fyrirlestur sem enginn kennari má missa af.

Hér er á ferðinni einn allra besti fyrirlestur sem ég hef heyrt í langan tíma. Robinson er frábær hugsuður og afburða ræðumaður. Ekki sakar að hann hefur stórkostlegan húmor sem hann nýtir sér óspart þegar hann talar. Dæmið bara sjálf.

Eftir að hafa horft á Robinson flytja fyrirlesturinn fór ég beint inn á Amazon vefinn og keypti mér bókina.

p.s.
Ég hef áður skrifað um fyrirlestur á TED ráðstefnunni, nánar tiltekið fyrirlestur Hans Rosling um myndræna framsetningu tölfræðilegra gagna með aðstoð Gapminder. Frábær fyrirlestur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

On the powers of time

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni